Röktu slóð vopnaðs ræningja í nýföllnum snjó á Akureyri Birgir Olgeirsson skrifar 17. febrúar 2019 13:48 Maðurinn ógnaði tveimur starfsmönnum kjörbúðar með hnífi. Vísir/Tryggvi
Rán var framið í kjörbúð á Akureyri á sjöunda tímanum í morgun. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu en í tilkynningunni segir að karlmaður á þrítugsaldri ógnaði tveimur starfsmönnum með hnífi og krafðist þess að fá afhenta peninga úr sjóðsvélum. Þegar hann hafði fengið peningana hljóp hann á brott frá versluninni. Lögreglumenn á Akureyri fengu veður af ráninu meðan það var yfirstandandi og gátu brugðist skjótt við. Unnt var að rekja ferðir mannsins í nýföllnum snjó og ganga að honum þar sem hann hafði falið sig. Maðurinn veitti ekki mótspyrnu við handtökuna en er talinn hafa verið undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna. Hann er vistaður í fangageymslu meðan af honum rennur víman og unnt verður að yfirheyra hann. Peningaupphæðin sem hann rændi er óveruleg. Rannsókn málsins miðar vel og starfsmönnum verslunarinnar var boðin áfallahjálp. Ekki er talið að maðurinn hafi átt sér vitorðsmenn. Ákvörðun um hvort gerð verður krafa um gæsluvarðhald, bíður kvöldsins.
Akureyri Lögreglumál Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Sjá meira