Körfubolti

„Helvítis svindlaraskítseiðið þitt“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
McCaffery er ekki vinur dómarastéttarinnar í dag.
McCaffery er ekki vinur dómarastéttarinnar í dag. vísir/getty
Körfuboltaþjálfarinn Fran McCaffery missti algjörlega stjórn á skapi sínu í gær er lið hans, Iowa, tapaði gegn Ohio State.

Er leikurinn var að tapast fékk sonur þjálfarans, Connor McCaffery, óíþróttamannslega villu og þjálfarinn fékk eina sömuleiðis fyrir mótmæli. Feðgarnir standa þétt saman.

Leikurinn tapaðist að lokum með 20 stiga mun, 90-70, og sturlaður McCaffery elti einn dómarann út af vellinum og öskraði á hann: „Helvítis svindlaraskítseiðið þitt. Þú ert til skammar“.

Fastlega má búast við því að þjálfarinn fái refsingu fyrir þessa hegðun en hann neitaði að tjá sig um atvikið eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×