Elsta núlifandi kona heims krýnd elsta núlifandi kona heims Vésteinn Örn Pétursson skrifar 9. mars 2019 14:46 Tanaka var hress við afhendingu viðurkenningarskjalsins sem henni var veitt fyrir að vera elsta núlifandi kona heims. Takuto Kaneko/AP
Kane Tanaka frá Fukuoka í Japan var í dag opinberlega staðfest af Heimsmetabók Guinness sem elsta núlifandi manneskja veraldar. Tanaka er fædd 2. janúar 1903 og er því 116 ára og 66 daga gömul í dag. Aldur Tanaka var staðfestur af Heimsmetabókinni þann 30. janúar á þessu ári, en þá var hún skör yngri en hún er nú, eða aðeins 116 ára og 28 daga gömul. Heilsa Tanaka hefur ekki alltaf verið upp á sitt besta en hún hefur meðal annars gengist undir aðgerðir vegna skýja á augum og ristilkrabbameins. Í dag er hún þó nokkuð stálslegin miðað við aldur og fyrri störf og heldur til á dvalarheimili fyrir aldraða í Fukuoka. Tanaka vaknar um klukkan sex á morgni hverjum og eftir hádegi leggur hún stund á nám á greinum á borð við stærðfræði. Eitt helsta tómstundaáhugamál hennar er borðspilið Othello, en starfsfólk dvalarheimilisins sem hún býr á segir hana ansi góða í því. Aðspurð hvað Tanaka hygðist gera í tilefni þess að hafa verið opinberlega krýnd elsta kona í heimi sagðist hún ætla að borða „100 súkkulaðimola.“
Japan Tímamót Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira