Ætla að rífa San Siro leikvanginn í Mílanó Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2019 10:00 San Siro er einn frægasti leikvangur heims en þar voru spilaðir leikir á bæði HM 1934 og HM 1990 sem og á EM 1980. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar (og Evrópukeppni meistaraliða) hefur fjórum sinnum farið fram á leikvanginum eða 1965, 1970, 2001 og 2016. Vísir/Getty
Einn frægasti fótboltaleikvangur í heimi heyrir bráðum sögunni til. San Siro leikvangurinn í Mílanó verður nefnilega jafnaður í jörðu á næstu misserum ef marka má fréttir frá Ítalíu. Samkvæmt tillögunum á að rífa þennan fornfræga leikvang sem hýst hefur bæði leiki AC Milan og Internazionale Milan. AC Milan hefur spilað á leikvanginum frá 1926 en Internazionale byrjaði að spila þar árið 1947.San Siro to be demolished and rebuilt by 2023 (@Kaus_Pandey17) https://t.co/LRAbMiA2UNpic.twitter.com/QGc7pDJIW8 — CalcioMercato (En) (@CmdotCom_En) March 4, 2019Giuseppe Meazza leikvangurinn eins og hann heitir formlegu nafni var byggður árið 1926 og það styttist því í hundrað ára afmælið. San Siro verður þó væntanlega ekki uppistandandi eftir sjö ár. Stefnan er að byggja annan leikvang fyrir AC Milan og Internazionale í aðeins hundrað metra fjarlægð frá San Siro. San Siro verður rifinn en í raun endurbyggður og mun eflaust fá nafnið nýi San Siro eða eitthvað viðlíka. Ítalska blaðið La Republicca hefur sagt frá þessu og því að bæði borgaryfirvöld og AC Milan hafi gefið grænt ljós á framkvæmdirnar. Aðeins sé beðið eftir samþykki Internazionale sem á líka að vera formsatriði. Nýi leikvangurinn mun kosta um 600 milljónir evra eða meira en 82 milljarða íslenskra króna. Hann á að vera tilbúinn árið 2023. Forráðamenn frá bæði AC Milan og Internazionale fóru á dögum til Bandaríkjanna þar sem þeir skoðuðu íþróttaleikvanga eins og MetLife leikvanginn í nágrenni New York borgar. San Siro er einn frægasti leikvangur heims en þar voru spilaðir leikir á bæði HM 1934 og HM 1990 sem og á EM 1980. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar (og Evrópukeppni meistaraliða) hefur fjórum sinnum farið fram á leikvanginum eða árin 1965, 1970, 2001 og 2016.
Ítalski boltinn Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Fleiri fréttir „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ Sjá meira