Tölvuárásir hafa sett svip á starfsemi norska álfyrirtækisins Norsk Hydro ASA í dag. Draga hefur þurft úr framleiðslu ýmissa álvera fyrirtækisins, auk þess sem ákvörðun hefur verið tekin um að takmarka sjálfvirkni álveranna meðan á árásunum stendur.
Vefsíða Hydro liggur niðri en fyrirtækið hefur greint frá þróun mála á Facebook-síðu sinni í dag auk þess sem blásið var til blaðamannafundar síðdegis.
Á fundinum kom meðal annars fram að Hydro hafi reynt eftir fremsta megni að láta tölvuárásina ekki hafa áhrif á framleiðslu sína. Það hafi í meginatriðum tekist, til að mynda hafi verið hægt að vernda orkuver fyrirtækisins undan tölvuóværunni. Engu að síður hafi þrjótunum tekist að trufla stafrænar samskiptaleiðir fyrirtækisins sem varð til þess að stöðva þurfti framleiðslu í nokkrum af minni álverum fyrirtækisins.
Ekki hefur verið gefið upp hvaða álver félagsins urðu fyrir barðinu á tölvuárásinni, en þó er talið að þeirra á meðal séu nokkur í Bandaríkjunum og Noregi.
Árásin hófst síðastliðna nótt og stendur enn yfir. Starfsmönnum fyrirtækisins var ráðlagt þegar þeir mættu til vinnu í morgun að skrá sig ekki inn í tölvurnar á vinnustöðum sínum eða treysta á þráðlausa netið. Þeir hafa því þurt að reiða sig á snjallsíma sína í dag.
Hydro segist ekki vita nákvæmt umfang árásarinnar eða hver stendur á bakvið hana. Að sama skapi liggi ekki fyrir hver fjárhagsleg áhrif árásarinnar verða eða hvenær hægt verður ráða niðurlögum veirunnar.
Norsk Hydro rekur ekki álver á Íslandi. Fyrirtækið hafði þó í hyggju að festa kaup á álverinu í Straumsvík í fyrra en ekkert varð af þeim áformum.
