Moise Kean tryggði Juventus sigur á AC Milan, 2-1, í stórleik 31. umferðar ítölsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Þessi 19 ára strákur hefur skorað í síðustu fimm leikjum sínum með lands- og félagsliði. Hann byrjaði á bekknum í dag en kom inn á um miðbik seinni hálfleiks og skoraði sigurmarkið þegar skammt var til leiksloka.
Með sigrinum náði Juventus 21 stigs forskoti á toppi ítölsku deildarinnar. Milan, sem er án sigurs í síðustu fjórum leikjum sínum, er í 4. sætinu.
Milan komst yfir á 39. mínútu þegar Krzysztof Piatek skoraði sitt 21. deildarmark í vetur.
Þegar klukkutími var liðinn fiskaði Paolo Dybala vítaspyrnu. Argentínumaðurinn fór sjálfur á punktinn og jafnaði í 1-1.
Kean skoraði svo sigurmark Juventus þegar sex mínútur voru til leiksloka. Lokatölur 2-1, Juventus í vil.
