Innlent

Handtóku þrjá og fundu stolinn bíl á vettvangi annars máls

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ökumaðurinn sem lögregla hafði í upphafi afskipti af var laus að sýnatöku lokinni.
Ökumaðurinn sem lögregla hafði í upphafi afskipti af var laus að sýnatöku lokinni. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá og lagði hald á stolna bifreið í nótt en lögreglumenn fundu bílinn fyrir tilviljun við vinnslu annars máls, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Tildrög málsins eru þau að á fjórða tímanum í nótt hafði lögregla afskipti af ökumanni í austurborginni. Sá reyndist vera undir áhrifum fíkniefna og var því handtekinn og færður til sýnatöku á lögreglustöð. Á meðan lögreglumenn unnu að málinu veittu þeir annarri bifreið athygli sem hafði verið lagt skammt frá þeim en við nánari eftirgrennslan reyndist bifreiðin hafa verið auglýst stolin.

Lögregla tók bílinn í sína vörslu og handtók þremenninga sem grunaðir eru um aðild að stuldinum. Þeir voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins en ökumaðurinn sem lögregla hafði í upphafi afskipti af var laus að sýnatöku lokinni.  

Hreiðruðu um sig í þvottahúsi í miðbænum

Laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi hafði lögregla svo afskipti af ölvuðum manni sem var til trafala í Breiðholti. Maðurinn lét sér segjast eftir afskipti lögreglu og hélt heim á leið.

Þá stöðvaði lögregla för tveggja ökumanna í austurborginni en þeir voru grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Próf gaf svörun um neyslu beggja á fíkniefnum og var því tekið af þeim blóðsýni í þágu rannsóknar málanna. Þar að auki fundust fíkniefni og reiðufé við leit í bifreiðum þeirra. Lögregla rannsakar mál beggja ökumanna.

Þá var vörum stolið úr búð í Breiðholti í gærkvöldi en lögreglumenn voru kallaðir á staðinn um tíuleytið. Sakborningur var laus að skýrslutöku lokinni og vörunum var skilað.

Þá fór lögregla að heimili í miðbæ Reykjavíkur um klukkan hálf ellefu. Þar höfðu fjórmenningar hreiðrað um sig í þvottahúsi í sameign hússins. Lögregla vísaði fólkinu á dyr og benti þeim á úrræði Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×