Innlent

Stálu verkfærum fyrir hundruð þúsunda

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Áður hafði verið brotist inn í verkstæði í umdæminu.
Áður hafði verið brotist inn í verkstæði í umdæminu. Vísir/Vilhelm
Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina og verkfærum að verðmæti 300-350 þúsund króna stolið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Áður hafði verið brotist inn í verkstæði og þaðan stolið talsvert mörgum verkfærum, einkum hleðsluborum. Hafði útidyrahurðin verið spennt upp og sá eða þeir sem þar voru að verki komist inn með þeim hætti. Lögregla rannsakar bæði málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×