Rekinn eftir næstversta árangur sögunnar Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. apríl 2019 09:30 Igor Kokoskov þarf að leita sér að vinnu vísir/getty
Fyrsti Evrópubúinn sem stýrt hefur NBA liði var í gærkvöld rekinn eftir mikið vonbrigðatímabil. Þegar Igor Kokoskov var ráðinn til Phoenix Suns fyrir þetta tímabil varð hann fyrsti aðalþjálfarinn í sögu NBA deildinni sem fæddist í Evrópu. Hann hafði hins vegar eytt 18 tímabilum í NBA deildinni sem aðstoðarþjálfari og stýrði Slóveníu til síns fyrstsa Evrópumeistaratitils árið 2017. Hann tók við liðinu eftir erfitt tímabil þar sem það hafði aðeins unnið 21 leik. Kokoskov tókst hins vegar ekki að lífga liðið við, tímabilið í ár varð enn verra og Suns lauk leik með 19 sigra og 63 töp, versta árangurinn í Vesturdeildinni í ár. Þetta var jafnframt næst versta tímabil í sögu félagsins, aðeins 1969 varð árangurinn verri, þá vann Phoenix 16 leiki. „Eftir mikla umhugsun hef ég ákveðið að það sé best fyrir okkur að horfa annað með aðalþjálfara,“ sagði framkvæmdarstjóri Suns, James Jones. Fréttamaður ESPN heldur því fram að Suns hafi ákveðið að losa sig við Kokoskov á þessum tímapunkti til þess að geta keppt við Los Angeles Lakers um aðstoðarþjálfara Philadelphia 76ers, Monty Williams. Williams hefur nú þegar sest einu sinni niður með Lakers og er annar fundur á dagskrá í vikunni. Phoenix hefur skipt ört um þjálfara síðustu ár en næsti maður sem kemur inn verður sá sjöundi á átta tímabilum.
NBA Mest lesið Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Körfubolti Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Enski boltinn Sunnudagsmessan: Hver hefur komið mest á óvart? Enski boltinn Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Körfubolti Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Handbolti Ekitike tryggði sigurinn og fór beint í sturtu Enski boltinn Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Körfubolti Barcelona vill fá Rashford á tombóluverði Enski boltinn Rúnar Már og Amin missa af stórleiknum upp á Skaga Íslenski boltinn „Ekkert eðlilegt að hlaupa ósofin í allan þennan tíma“ Sport Fleiri fréttir Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Sjá meira