Rannsókn lögreglu á bruna í Seljaskóla aðfaranótt sunnudagsins 12. maí síðastliðins er langt komin. Þrír piltar hafa játað aðild að íkveikju sem leiddi til eldsvoða í þaki skólans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Piltarnir eru allir undir 18 ára aldri og einn þeirra er yngri en 15 ára sem er sakhæfisaldur. Málið hefur verið unnið í samráð við félagsmálayfirvöld og heldur rannsókn þess áfram.
Segir lögregla ekki unnt að veita frekari upplýsingar á þessu stigi málsins.
Gríðarlegt tjón varð á skólanum eftir brunann og hefur kennsla þurft að fara fram annars staðar í þessari viku vegna skemmda á húsnæðinu.
Játa aðild að íkveikju sem leiddi til eldsvoða í Seljaskóla

Tengdar fréttir

Nemendur Seljaskóla fá inni hjá nágrönnum
Munu ljúka skólaárinu í Félagsmiðstöðinni Hólmaslóð og Seljakirkju.

Skólastarf hefst á ný eftir eldsvoða
Skólastarf mun hefjast að nýju í Seljaskóla í Breiðholti í dag en starfsmenn skólans nýttu daginn í gær í hreinsun á skólanum.