Stuðningsfaðir braut kynferðislega gegn fatlaðri konu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 1. júní 2019 10:32 Auk tveggja ára fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni eina milljón króna í bætur. FBL/Ernir
Landsréttur staðfest í gær tveggja ára fangelsisdóm fyrir karlmanni sem braut þrisvar sinnum kynferðislega gegn ungri fatlaðri konu sem vart var af barnsaldri. Maðurinn og þáverandi kona hans voru stuðningsfjölskylda ungu konunnar í tvö ár eða skömmu áður en maðurinn braut á henni í fyrsta sinn. Unga konan var viðloðandi heimilið í hálft annað ár eftir það. Hjá yfirmatsmönnum kom fram að brotaþoli virtist hafa borið traust til hins seka sem uppalanda eða „föðurímyndar“. Fyrrverandi eiginkonu hins seka og fyrrverandi stuðningsmóður konunnar fór að gruna að ekki væri allt með felldu þegar heimsóknum ungu konunnar tóku að fækka og augljóst var að hún forðaðist manninn. Það var ekki fyrr en fyrrverandi stuðningsmóðirin spurði hana nánar út í fjarveru hennar sem málið komst fyrst upp á yfirborðið. Unga konan sagði fyrrverandi stuðningsmóður sinni frá öllu en þær eru mjög nánar. Hún hvatti hana til að segja foreldrum sínum frá brotunum og fyrir dómi fullyrti hún að það væri alveg á hreinu að maðurinn vissi að unga konan væri fötluð.Maðurinn er 36 árum eldri Maðurinn byggði vörn sína á því að á þessum tíma hefði hann tekið inn lyf við fótaóeirð og að mögulegar aukaverkanir gætu falist hegðun sem væri óvenjuleg, svo sem spilafíkn og aukin kynhvöt. Maðurinn sem 36 árum eldri en brotaþoli játaði fyrir dómi að hafa haft „kynferðislegt samneyti“ við konuna í þrjú skipti og segir að það hefði verið með samþykki hennar. Hann sagðist ekki draga í efa niðurstöður matsgerðar, yfirmatsgerðar og annarra eldri gagna sem fyrir liggja í málinu um andlega fötlun brotaþola en hann sagðist, þvert á orð fyrrverandi eiginkonu sinnar, ekki hafa verið nægilega kunnugt um andlega annmarka brotaþola. Maðurinn sagðist frekar hafa fundist um hjúskaparbrot að ræða af sinni hálfu og af þeim sökum beðið brotaþola um að halda trúnað um það sem þeim fór á milli. Fyrir liggur að konan var greind á Greiningar-og ráðgjafarstöð ríkisins árið 2011 og hefur frá þeim tíma notið þjónustu sveitarfélags sem fatlaður einstaklingur. Í svörum matsmanns kom fram að fötlun ungu konunnar sé augljós þeim sem eigi við hana samskipti. Skilningur hennar á kynferðislegum samskiptum fólks, eins og öðrum samskiptum, sé takmarkaður eins og við megi búast út frá þeirri tvíþættu fötlun sem hún eigi við að stríða. Hún hafi litið á hinn seka sem föður sinn og borið til hans óskorað traust enda hafi hún flust inn á heimili hans á viðkvæmum aldri. Reyndi án árangurs að „hverfa“ Leiða má líkur að því að skilningur konunnar á kynferðislegum samskiptum fólks hafi verið lítill eða sambærilegur við skilning 11-12 ára stúlkubarns samkvæmt matsmanni. Unga konan sagði að henni hefði í öll skiptin þótt þetta mjög óþægilegt, orðið hrædd, lokað augunum og reynt að „hverfa“ en henni hafi ekki tekist það. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að ákærði braut í þrígang gróflega gegn kynfrelsi og trausti andlega fatlaðrar konu sem vart var af barnsaldri, inni á heimili hans þar sem hún hafði áður búið sem skjólstæðingur hans og mátti telja sig óholta. Þykir það fullsannað að ákærði hafi bæði misnotað sér andlega fötlun ungu konunnar og beitt hana ólögmætri nauðung með því að nýta sér yfirburðastöðu sína gagnvart henni og traust hennar til hans til að ná fram kynferðislegum samskiptum við hana í þrjú skipti eins og lýst er í ákæru. Auk tveggja ára fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni eina milljón króna í bætur.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira