Sjálfsvígsárás í Nígeríu varð þrjátíu að bana Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 17. júní 2019 11:25 Lögreglan að störfum eftir hryðjuverkaárás í norðaustur Nígeríu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. getty/next24online
Minnst 30 eru látnir eftir sjálfsvígs sprengjuáraás í norðaustur Nígeríu. Þetta kemur fram í tilkynningu yfirvalda og greint er frá málinu á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Fjörutíu til viðbótar eru særðir, samkvæmt Neyðarástandsstofnun Nígeríu (e. State Emergency Management Agency). Árásarmennirnir virkjuðu sprengjurnar fyrir utan stóran sal í Konduga í Borno ríki, þar sem fótboltaaðdáendur voru að horfa á leik í sjónvarpinu. Hryðjuverkahópnum Boko Haram hefur verið kennt um árásina þótt að hann hafi ekki tekið ábyrgð á henni. Hópurinn hefur ítrekað gert sprengjuárásir í ríkinu. Ali Hassan, leiðtogi sjálfsvarnar hóps í Konduga, sagði í samtali við fréttastofu AFP að eigandi salsins hafi rifist við einn sprengjumannanna þegar hann reyndi að komast inn í salinn. „Það urðu hvöss skoðanaskipti á milli eigandans og sprengjumannsins, sem sprengdi sjálfan sig í loft upp,“ sagði hann. Boko Haram hefur orðið 27.000 einstaklingum að bana og neytt um tvær milljónir einstaklinga til að yfirgefa heimili sín.
Nígería Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira