Nígería

Nígería

Höfuðborg: Abúja. Mannfjöldi: 227,9 milljónir (2025). Flatarmál: 923.768 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ást­vinir þeirra sem létust í flug­slysinu bíða enn

Meira en vika er liðin síðan tuttugu og fimm létust eftir að flugvél nígeríska flughersins fórst en enn er leitað að braki úr vélinni og leifum hinna látnu. Aðstæður á svæðinu hafa gert björgunarstarfsfólki erfitt fyrir en flugvélin brotlenti í mýrlendi á afskekktu svæði í suðvesturhluta ​Nígeríu. Um borð voru nítján hermenn og sex óbreyttir borgarar.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lést eftir mis­lukkaða typpastækkun í Taí­landi

Bresk-nígeríski viðskiptajöfurinn Igho „Tiny“ Ubiribo lést eftir að farið í typpastækkunaraðgerð í Taílandi en hann var þar í fríi með eiginkonu sinni í mars. Upphaflega var talið að Ubiribo hefði dáið úr hjartaáfalli en nú hefur dánardómstjóri úrskurðað að typpastækkunin hafi dregið hann til dauða.

Lífið
Fréttamynd

Segir Banda­ríkin ekki geta ráðist inn

Talsmaður Nígeríuforseta segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn í Nígeríu vegna ásakana um að þar í landi standi yfir umfangsmikil dráp á kristnum mönnum af hálfu íslamskra öfgamanna. Hann segir Trump, sem sagðist í gær undirbúa Stríðsmálaráðuneyti Bandaríkjanna undir innrás í Nígeríu, byggja hótanir sínar á misvísandi fréttaflutningi.

Erlent
Fréttamynd

Segir hernum að undir­búa á­rás á Nígeríu

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fyrirskipað hernaðarmálaráðuneyti Bandaríkjanna að undirbúa mögulega árás á Nígeríu. Þar vilji hann gjöreyða Íslömskum öfgamönnum sem séu að drepa kristna menn þar í landi.

Erlent
Fréttamynd

Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur

Nígerísk stjörnuhjón sem halda brúðkaup í Hallgrímskirkju í dag hafa látið reisa stærðarinnar glerhýsi í Kleif í Kjós þar sem brúðkaupsveisla verður haldin að lokinni athöfn. Mikið umstang er í kringum brúðkaupið og búist er við hundruðum gesta erlendis frá og tökuteymi frá Netflix. Þetta er aftur á móti ekki fyrsta brúðkaupsathöfn hjónanna, sem eru þegar gift.

Lífið
Fréttamynd

Tóku tugi af lífi eftir að hafa fengið lausnarfé

Glæpamenn sem rændu 56 manns í Zamfara-héraði í Nígeríu hafa tekið að minnsta kosti 35 þeirra af lífi. Það gerðu þeir þrátt fyrir að hafa fengið greitt lausnarfé fyrir fólkið. Embættismenn segja flesta hinna látnu hafa verið unga og að þeim hafi verið „slátrað eins og búfénaði“.

Erlent
Fréttamynd

Þrjá­tíu og fimm börn tróðust undir á jóla­há­tíð

Að minnsta kosti 35 börn eru látin eftir að hafa troðist undir á jólahátíð í Ibadan í Nígeríu í gær. Forsvarsmenn hátíðarinnar höfðu lofað peningaverðlaunum og mat fyrir gesti en íbúar segja rúmlega fimm þúsund börn hafa mætt, auk foreldra og annarra.

Erlent
Fréttamynd

Safna til að koma konunum í varan­legt skjól í Nígeríu

Hópur fólks stendur nú fyrir söfnun til að aðstoða þrjár nígerískar konur sem var vísað úr landi fyrr í þessum mánuði. Konurnar fengu allar endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd fyrir um ári síðan og voru fluttar á brott í þvinguðum brottflutningi. 

Innlent
Fréttamynd

For­­dæma brott­vísun mansals­þol­enda og vilja nýja stefnu

Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal. 

Innlent
Fréttamynd

Fékk ekki að kveðja eigin­manninn fyrir flugið til Nígeríu

Seint í gær var fjórum nígerískum ríkisborgurum vísað úr landi. Einn þeirra var hinn tvítugi Precious Felix Tanimola. Hann hefur verið á Íslandi í um tvö ár, var með atvinnuleyfi og er giftur íslenskri konu. Eiginkona hans segir brottvísun hans mikið áfall.

Innlent
Fréttamynd

Full­trúar Stíga­móta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu

Talskona Stígamóta segir íslenska ríkið brjóta alþjóðasáttmála með því að vísa þolendum mansals úr landi og tryggja ekki öryggi þeirra á viðkomustað. Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið til Frankfurt seint í gær. Fulltrúar Stígamóta vinna að því að tryggja öryggi þeirra. 

Innlent