Flugvélaframleiðandinn Boeing sem hefur verið stærsti framleiðandinn á flugvélamarkaðnum síðastliðin átta ár hafa nú lútið í lægra haldi fyrir samkeppnisaðilanum Airbus sem hafa verið næst stærstir síðast liðin ár. Reauters greina frá þessu.
Airbus afhenti alls 389 þotur á fyrri helming ársins 2019 og jók söluna um 28% frá því í fyrra.
Í yfirlýsingu frá stjórnendum Boeing afhenti fyrirtækið um 37% færri vélar frá því á sama tíma í fyrra og seldi framleiðandinn 239 vélar.
Þetta stafar af kyrrsetningu 737 MAX þota í kjölfar galla sem er varð til þess að tvær flugvélar hröpuðu. Sú fyrri í yfir Indónesíu í október síðastliðnum og síðari yfir Eþíópíu. Alls létust 346 í slysunum.
Þoturnar voru kyrrsettar eftir síðara slysið og hafa framleiðendur unnið að úrbótum Annar galli fannst hins vegar í stýrikerfi MAX vélanna í síðasta mánuði sem hefur þau áhrif að þoturnar verði áfram kyrrsettar um allan heim og gerir framleiðandinn ráð fyrir því að í fyrsta lagi verði hægt að afhenda þær í lok september.
Í síðasta mánuði undirritaði hins vegar eigandi British-Airways, IAG, viljayfirlýsingu um að panta 200 nýjar 737 MAX þotur.
Boeing ekki lengur stærstir á markaðnum
Tengdar fréttir

Fundu annan galla í stýrikerfi Boeing 737 MAX
Samkvæmt heimildum CNN hefur fundist annar galli í stýrikerfi Boeing 737 MAX.

Falla frá stórri pöntun á Boeing 737 Max vélum
Sádí-arabíska lággjaldaflugfélagið Flyadeal, hefur tekið ákvörðun um að draga pöntun sína á þrjátíu Boeing 737 Max vélum til baka.

Airbus vill fá að bjóða í fyrirhugaða risapöntun IAG ætlaða Boeing
Christian Scherer, sölustjóri Airbus, segir að flugvélaframleiðandinn hafi mikinn áhuga á því að fá að bjóða í stóra flugvélapöntun evrópsku flugfélagasamstæðunnar IAG, sem tilkynnti í vikunni að það hafi skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á 200 Boeing 737 MAX flugvélum.