Innlent

Braut á minni máttar og sýndi vinkonu sinni á Skype

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Málið var kært fyrir þremur árum en dómur upp kveðinn í gær.
Málið var kært fyrir þremur árum en dómur upp kveðinn í gær. Vísir/Vilhelm
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt táning í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn pilti fyrir þremur árum. Braut hann á piltinum sem var meðvitundarlaus vegna áhrifa lyfja. Sýndi hann vinkonu sinni og stúlkum sem voru með henni það sem fram fór í myndsamtali á Skype.

Var hann ákærður fyrir nauðgun með því að hafa með fyrrnefndu broti sínu haft önnur kynferðismök við vin sinn en samræði. Nýtti hann sér að pilturinn var meðvitundarlaus vegna áhrifa lyfja og gat vegna ástands síns ekki spornað við verknaðinum. Hlaut vinurinn litla sprungu aftan til í endaþarmsopi.

Brotin áttu sér stað á heimili föður táningsins þar sem vinurinn var gestur.

Þá var táningurinn sömuleiðis dæmdur fyrir blygðunarsemisbrot með því að hafa í myndsamtali á Skype í farsíma sínum sýnt vinkonu sinni það sem fram fór, þ.e. vin sinn meðvitundarlausan, kynfæri hans og rass og þau kynferðisbrot sem hann framkvæmdi. Þá tók hann myndir af framangreindu á farsíma sinn, sendi vinkonu sinni sama kvöld og vininum nokkrum dögum síðar.

Dómur var kveðinn upp í gær og var táningurinn dæmdur til að greiða vini sínum eina milljón króna í miskabætur. Þá var hann jafnframt sakfelldur fyrir líkamsárás sem sömuleiðis átti sér stað fyrir þremur árum.

Í niðurstöðu dómsins segir að kynferðisbrotið hafi verið alvarlegt og niðurlægjandi auk þess að beinast gegn minni máttar sem taldi hann vin sinn. Á móti komi að ákærði hafi verið enn á barnsaldri þegar hann var þau brot sem hann væri nú sakfelldur fyrir. Þá yrði að líta til þess að hann hefði snúið lífi sínu til betri vegar.

Auk þess var tekið tillit til þess hve langur dráttur hefði orðið á meðferð málsins sem væri ekki táningnum um að kenna. Á þeim tíma hefði táningurinn náð að koma lífi sínu á réttan kjöl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×