Valur mætir búlgörsku meisturunum í Evrópudeildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júlí 2019 22:03 Valur átti ekki mikla möguleika gegn Maribor í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. vísir/bára
Íslandsmeistarar Vals mæta Búlgaríumeisturum Ludogorets Razgrad í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Bæði liðin féllu úr leik í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Valur tapaði fyrir Maribor, 5-0 samanlagt, á meðan Ludogorets laut í lægra haldi fyrir Ferencváros, 5-3 samanlagt. Ludogorets hefur unnið búlgarska meistaratitilinn átta sinnum í röð, eða öll tímabilin sem liðið hefur leikið í efstu deild. Auk þess hefur Ludogorets tvisvar sinnum orðið búlgarskur bikarmeistari. Ludogorets hefur einnig náð góðum árangri í Evrópukeppnum á undanförnum árum. Liðið hefur tvisvar sinnum komist í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og einu sinni alla leið í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Ludogorets hefur leikið 76 Evrópuleiki en aldrei mætt íslensku liði. Í bæði skiptin sem Ludogorets komst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar drógust Ernirnir, eins og félagið er kallað, með ensku liði í riðli. Tímabilið 2014-15 lenti Ludogorets með Liverpool í riðli og gerði jafntefli í heimaleiknum, 2-2. Liverpool vann á Anfield, 1-2. Tímabilið 2016-17 lenti Ludogorets með Arsenal í riðli og tapaði báðum leikjunum, 6-0 úti og 2-3 heima. Fyrri leikur Vals og Ludogorets fer fram á Hlíðarenda fimmtudaginn 25. júlí. Sá seinni fer fram í Razgrad viku seinna.
Evrópudeild UEFA Tengdar fréttir Umfjöllun: Maribor - Valur 2-0 │Ekkert Meistaradeildarævintýri í ár Íslandsmeistarar Vals eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap fyrir slóvensku meisturunum í Maribor ytra í dag. Valur tapaði einvíginu samtals 5-0. 17. júlí 2019 20:00 Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Körfubolti KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Körfubolti Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Dómaraskandall og augnpot: Hrafn getur bundið enda á áralanga baráttu sína gegn Bean Sport „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Fótbolti Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Fótbolti Fleiri fréttir Baulað á skúrk síðustu viku en Real heldur í vonina Ótrúleg endurkoma og Inter gæti náð tvennunni Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Ísland niður um sæti en berst við tvö af þremur bestu í heimi Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Spjótin standa að Jóni Degi og Freyr stígur inn á milli Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Fiorentina fjarlægist fallsætin Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Elías með stórleik í sigri í toppslag Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Sjá meira
Umfjöllun: Maribor - Valur 2-0 │Ekkert Meistaradeildarævintýri í ár Íslandsmeistarar Vals eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap fyrir slóvensku meisturunum í Maribor ytra í dag. Valur tapaði einvíginu samtals 5-0. 17. júlí 2019 20:00