Ítölsku meistararnir hafa hækkað tilboð sitt í hinn nítján ára gamla varnarmann og er talið að félögin hafi náð samkomulagi um verðmiðann í gær.
De Ligt er ekki með félögum sínum í Austurríki þar sem liðið undirbýr sig fyrir komandi tímabil en PSG og Barcelona höfðu einnig áhuga á þessum frábæra varnarmanni.
Matthijs de Ligt is "awaiting a possible transfer".
— BBC Sport (@BBCSport) July 13, 2019
He's not in Ajax's training squad.
https://t.co/EXbOljMPvEpic.twitter.com/8NnGyXpKmd
Juventus og varnarmaðurinn knái hafa nú þegar náð saman um kaup og kjör. Talið er að hann muni þéna tæplega ellefu milljónir punda á ári hjá Juventus auk bónusa.
Fyrsta boð Juventus hljóðaði upp á rúmlega 58 milljónir punda en hugmynd Ajax var í kringum 67 milljónir punda. Ekki hefur verið gefið upp verðmiðinn sem félögin hafa samþykkt nú.