Þættirnir fóru í loftið árið 2007 en lokaþáttur Gossip Girl var sýndur 17. desember 2012.
„Hin alvitra blaðurskjóða“ er sögumaður þáttanna en bandaríska leikkonan Kristen Bell talar fyrir hana þó að henni bregði aldrei fyrir á skjánum. Þættirnir byggja á samnefndum bókaflokki eftir Cevily von Ziegesaren. Josh Schwartz og Stephanie Savage eru framleiðendur þáttanna og koma aftur að gerð nýju þáttanna.
Upprunalegu þættirnir voru sýndir á sjónvarpsstöðinni CW en nýju þættirnir verða sýndir á glænýrri streymisveitu Warner Media en öll Friends-þáttaröðin verður til dæmis sýnd þar á næsta ári.
Framleiðendur munu leggja mikla áherslu á samfélagsmiðla í nýju þáttunum. „Hann mun sýna hversu mjög samfélagsmiðlarnir og sjálf borgarmynd New York hefur breyst á þessum árum sem hafa liðið“.
Aðstandendur þáttanna hafa ekki viljað greina frá því hvort einhver úr gamla leikhópi Gossip Girl muni bregða fyrir í nýju þáttunum en segja má að Lake Meester, Penn Badgley, Chase Crawford, Blake Lively og Ed Westwick hafi brotist til frægðar með þáttunum.

Í þáttunum leikur hann hinn bókhneigða Joe Goldberg sem fær konu á heilann og þróar með sér stórhættulega þráhyggju. Áhorfendur þáttanna hafa lýst upplifun sína af þáttunum sem bæði hrollvekjandi og ruglingslega því illmennið Joe er vitundarmiðja þáttanna.
Badgley sagði eftir á að hyggja að ekki væri í raun ekki neinn svakalegur munur á Joe og Humphrey. Samfélagið viðurkenni og á stundum upphefji jafnvel skaðlega hegðun sé hún í nafni ástar.
Meester sem fór með hlutverk Blair Waldorf sagði á síðasta ári að hún myndi ekki vilja leika Waldorf aftur þrátt fyrir „einstaka og frábæra lífsreynslu“ við tökur á þáttunum.
Blake Lively sem lék Serenu van der Woodsen var þó öllu opnari fyrir hugmyndinni um að leika sitt gamla hlutverk. „Hver veit,“ sagði Lively sem bætti við að þau hefðu öll haft svo gaman af því að vinna saman í New York.