Jack Black kannast eflaust margir við úr gamanmyndum en hann er einnig í hljómsveitinni Tenacious D ásamt félaga sínum Kyle Gass.
Þegar Jack Black og Jack White hittust ákváðu þeir að sjálfsögðu að kalla sig Jack Gray en Black birti myndband á YouTube-rás sinni þar sem sjá má heimsókn hans og Kyle Gass í hljóðver Jack White í Nashville sem er einnig heimili hans.
Jack Black og Kyle Gass höfðu unnið að nýju lagi í einhvern tíma en áttu eftir að fullklára það. Sagði Black að hann vonaðist til að Jack White myndi binda lagið saman fyrir þá og að fullkláruð afurð muni líta dagsins ljós innan skamms.