Hamrén átti kollgátuna með Kolbein Kristinn Páll Teitsson skrifar 9. september 2019 12:00 Kolbeinn Sigþórsson lék klukkutíma þegar Ísland vann Moldóvu og ljóst er að hann er óðum að finna sitt fyrra form með landsliðinu. Fréttablaðið/Ernir
Leikur Íslands og Moldóvu í undankeppni EM 2020 í knattspyrnu fór eins og best verður á kosið. Íslenska liðið vann þegar upp var staðið þægilegan sigur þar sem lykilleikmenn liðsins komu heilir frá verkefninu. Það sem gladdi stuðningsmenn íslenska liðsins ekki síst var það að Kolbeinn Sigþórsson lék í byrjunarliði í mótsleik í fyrsta skipti síðan í lokakeppni Evrópumótsins sumarið 2016. Margir fussuðu og sveiuðu þegar Erik Hamrén og Freyr Alexandersson völdu Kolbein hvað eftir annað í landsliðshópinn og gáfu honum mínútur í Þjóðadeildinni og vináttulandsleikjum á meðan Kolbeinn var úti í kuldanum hjá Nantes og svo að því er virtist í vandræðum með að finna sér nýtt félag. Leikurinn í gær sýndi og sannaði að Hamrén og Freyr voru með langtímaplan sem er að ganga upp á þessum tímapunkti. Kolbeinn braut ísinn í leiknum gegn Moldóvu á laugardaginn með snotru marki sem var það 24. á landsliðsferlinum sem setur hann tveimur mörkum frá Eiði Smára Guðjohnsen sem er á toppnum á listanum yfir markahæstu leikmenn í sögu landsliðsins. Hamrén var spurður út í stöðuna á Kolbeini á blaðamannafundi eftir sigurleikinn gegn Moldóvu. Hamrén sagðist að sjálfsögðu vera ánægður með frammistöðu Kolbeins en hrósaði þar um leið spilamennsku Jóns Daða en þeir félagar náðu vel saman í framlínunni. Svíinn vildi ekki segja af eða á um það hvort Kolbeinn yrði klár í slaginn þegar íslenska liðið sækir Albaníu heim á morgun.Spurningamerki hversu mikið Kolbeinn getur spilað Kolbeinn hefur hægt og sígandi aukið spiltíma sinn hjá sænska liðinu AIK síðan hann gekk til liðs við félagið og síðustu vikur hefur hann spilað um og yfir klukkutíma líkt og hann gerði í leiknum á móti Moldóvu. Hamrén sagði að staðan yrði tekin þegar komið væri til Albaníu hvort Kolbeinn væri klár í annan slag. Ljóst var á svörum Hamrén að það væri spurning hvort Kolbeinn gæti spilað í klukkutíma eða hálftími af varamannabekknum yrði raunin. Leikurinn við Albaníu ytra verður annars eðlis en sigurleikurinn við Moldóvu. Albaníumenn eru mun sterkari en Moldóvar og svo er munur á því að leika á heimavelli og að leika eftir ferðalag á útivöll. Það er bót í máli fyrir íslenska liðið að leikmenn leystu verkefnið á móti Moldóvum fagmannlega, komust tveimur mörkum yfir fljótlega í seinni hálfleik og gátu tekið Kolbein út af snemma, kippt Birki af velli áður en hann fékk áminningu og færi þá í leikbann og Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson þurftu ekki að taka á honum stóra sínum undir lok leiksins. Þá reyndi lítið sem ekkert á Hannes Þór Halldórsson og varnarlínuna utan þess að þurfa að halda einbeitingu sem reynir vissulega á andlega þáttinn. Þá fékk Emil Hallfreðsson mikilvægar mínútur til þess að koma sér í leikform fyrir leikinn gegn Albaníu. Það kæmi lítið á óvart að Hamrén og Freyr myndu fara úr leikkerfinu 4-4-2 yfir í 4-3-3 í leiknum gegn Albönum á morgun. Þar koma Emil Hallfreðsson og Rúnar Már Sigurjónsson til greina til þess að þétta raðirnar inni á miðsvæðinu. Þá fer það líklega eftir því hvort Kolbeinn er í líkamlegu formi til þess að spila í klukkutíma eða hálftíma hvort hann byrji eður ei. Það leikplan sem sett var upp í leiknum á móti Tyrklandi með Jón Daða uppi á toppi með Gylfa Þór fyrir aftan sig og Birki Bjarnason á öðrum kantinum og Arnór Ingva Traustason hinum megin kemur þá sterklega til greina.
Birtist í Fréttablaðinu EM 2020 í fótbolta Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Enski boltinn Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjá meira