Jón Guðni Fjóluson og félagar í Krasnodar töpuðu fyrir Getafe í Evrópudeildinni í kvöld.
Spænsku gestirnir komust yfir á 35. mínútu með marki frá Angel Rodriguez og voru þeir 1-0 yfir í hálfleik.
Rodriguez var aftur á ferðinni í seinni hálfleik og kom Getafe í 2-0 á 61. mínútu. Þar sat við og fór Getafe með öll stigin heim til Spánar.
Jón Guðni var í byrjunarliði Krasnodar en var tekinn af velli í hálfleik.
Tap hjá Jóni Guðna og félögum
