Manchester United tókst ekki að skora mark gegn AZ Alkmaar í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
United átti ekki eitt skot á markrammann í leiknum og endaði hann í 0-0 jafntefli. Hvorugt lið gerði sig almennilega líklegt til þess að skora mark og niðurstaðan því þessi.
Jesse Lingaard komst hvað næst því að skora í annars bragðdaufum leik en skot hans fór framhjá markinu. Þá vildu bæði lið fá vítaspyrnu en litháenski dómari leiksins gaf það ekki eftir.
United er með fjögur stig í riðlinum eftir sigur í fyrstu umferðinni en Alkmaar tvö.
Albert Guðmundsson gat ekki spilað með AZ vegna meiðsla.
Markalaust hjá United og AZ
