Rúnar minnkaði muninn í 1-2 með góðu skoti fimm mínútum fyrir leikslok. Markið má sjá hér fyrir neðan.
Rúnar hefur verið drjúgur í Evrópudeildinni á þessu tímabili og skorað fimm mörk í átta leikjum.
Nígeríski framherjinn Umar Sadiq skoraði bæði mörk Partizan sem er með fjögur stig á toppi riðilsins. Astana er enn án stiga.
Klukkan 16:55 hefst seinni leikur dagsins í L-riðli. AZ Alkmaar tekur þá á móti Manchester United.