Tilraunir Trump til að fá Volodímír Zelenskíj, forseta Úkraínu, til að rannsaka Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og líklegan mótframbjóðanda hans í forsetakosningum á næsta ári, hafa valdið miklu fjaðrafoki. Demókratar sem fara með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hófu rannsókn á mögulegum embættisbrotum vegna uppljóstrananna í síðustu viku.
Nýjar fréttir með frekari upplýsingum um framferði Trump við úkraínsk stjórnvöld og fleiri erlend ríki til að koma höggi á Biden og Rússarannsóknina svonefndu hafa verið daglegt brauð frá því að út spurðist að uppljóstrari innan leyniþjónustunnar hefði tilkynnt um að Trump hefði mögulega misnotað vald sitt í símtali við erlendan þjóðarleiðtoga í síðustu viku.
Hann greindi einnig frá því að Hvíta húsið hefði reynt að koma í veg fyrir að eftirrit símtalsins bærist víðar á óeðlilegan hátt. Hvíta húsið reyndi í fyrstu að koma í veg fyrir að þingið fengi kvörtun uppljóstrarans sem lög kveða á um að það eigi að gera.
Hvíta húsið birti samantekt á símtalinu í síðustu viku þar sem Trump sást þrýsta ítrekað á Zelenskíj um að rannsaka Biden. Símtalið átti sér stað í júlí.
Þrýstingurinn hefur verið settur í samhengi við að Trump skipaði um sama leyti fyrir um að hundruð milljóna dollara hernaðaraðstoð við Úkraínu yrði sett á ís. Engar áreiðanlegar skýringar hafa verið gefnar á því hvers vegna aðstoðinni var haldið eftir. Styrkurinn var veittur eftir að þingið byrjaði að spyrjast fyrir um afdrif hans í september.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra, sem hafði í fyrstu ekki þóst kannast við símtal Trump og Zelenskíj hefur nú viðurkennt að hafa verið viðstaddur þegar það átti sér stað. William Barr, dómsmálaráðherra, hefur einnig komið við sögu í málinu en Trump bað Zelenskíj um að vera í sambandi við Barr í tengslum við rannsókn á Biden.

Flutti Zelenskíj skilaboð Trump í Varsjá
Nú segir Washington Post frá því að Trump hafi blandað Mike Pence varaforseta inn á herferð sína til að þrýsta á Úkraínu að gera honum pólitískan greiða. Trump hafi skipað Pence að vera ekki viðstaddur embættistöku Zelenskíj í maí sem Hvíta húsið hafði áður lagt áherslu á að hann gerði.Nokkrum mánuðum síðar hafi forsetinn notað Pence til að koma þeim skilaboðum til Zelenskíj að hernaðaraðstoðinni yrði haldið eftir á sama tíma og hann krafðist frekari rannsóknar á „spillingu“. Það er orðalagið sem Trump hafði notað um rannsókn á Biden og syni hans Hunter sem sat í stjórn úkraínsks olíufyrirtæki á sama tíma og Biden var varaforseti.
Pence og Zelenskíj hittust í Varsjá í Póllandi 1. september. Trump átti sjálfur að fara í þá ferð en hætti við vegna fellibyljar sem þá stefndi á suðausturströnd Bandaríkjanna.
Heimildarmenn bandaríska blaðsins sem tengjast Pence hafna því þó að varaforsetinn hafi vitað af því að Trump þrýsti á Zelenskíj að rannsaka Biden-feðgana. Engu að síður var einn nánasti ráðgjafi Pence viðstaddur símtalið örlagaríka á milli Trump og Zelenskíj 25. júlí. Pence hafði ennfremur aðgang að eftirrit símtalsins strax á eftir.
Embættismenn í kringum Pence segja ennfremur að hann hafi ekki vitað af því að símtal Trump og Zelenskíj hefði valdið hugarangri innan Hvíta hússins. Þeir þræta þó fyrir að Pence hafi verið illa undirbúinn fyrir fundinn með Zelenskíj í Varsjá. Þá segja þeir að Pence hafi ekki fengið að vita frá Hvíta húsinu um tilvist uppljóstrarans fyrr en daginn áður en hún varð opinber.

Leitaði til þingnefndar þegar hann óttaðist að kvörtunin dagaði uppi
New York Times greindi frá því í dag að uppljóstrarinn hefði haft samband við aðstoðarmann Adams Schiff, formanns leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og demókrata, áður en hann lagði fram formlega uppljóstrarakvörtun til innri endurskoðanda leyniþjónustunnar. Washington Post staðfesti þær fréttir síðar í dag.Trump fullyrti í framhaldinu ranglega að Schiff hefði aðstoðað uppljóstrarann við að skrifa kvörtunina. Bandamenn forsetans hafa einnig stokkið á fréttina til að halda því fram að uppljóstrarinn hafi frá upphafi átt í samráði við demókrata um að koma höggi á Trump.
Reglur um uppljóstrara innan leyniþjónustunnar gera engu að síður ráð fyrir því að leiðtogar leyniþjónustunefnda þingsins séu á meðal þeirra sem uppljóstrarar geta leitað til um að koma upplýsingum á framfæri.
Í frétt New York Times kom fram að uppljóstrarinn hafi komið upplýsingum til Schiff eftir að hann hafði látið yfirlögfræðing leyniþjónustunnar CIA vita af mögulegu misferli í símtali Trump og Zelenskíj. Lögfræðingurinn hafði þá farið með kvörtunina til Hvíta hússins en óttaðist uppljóstrarinn á þeim tímapunkti að kvörtun hans yrði þögguð niður.
Schiff hafi aðeins fengið að vita í grófum dráttum hvað kvörtun uppljóstrarans varðaði og að mögulegt væri að ríkisstjórnin héldi henni leyndri. Hann vissi ekki hver uppljóstrarinn var. Starfsmenn nefndarinnar eru sagðir hafa bent uppljóstraranum á að ráða sér lögfræðing og hafa samband við innri endurskoðanda ef hann vildi leggja fram formlega kvörtun.
Þrátt fyrir ásakanir Trump og bandamanna hans varðandi að uppljóstrarinn hafi leitað til nefndar Schiff segja oddvitar beggja flokka í leyniþjónustunefnd öldungadeildarinnar að það séu stöðluð vinnubrögð að benda uppljóstrurum á innri endurskoðendur til að koma upplýsingum á framfæri.

Svaraði ekki hvað hann vildi að Úkraína gerði varðandi Biden
Trump hefur verið í miklum ham eftir að Úkraínumálið kom upp og demókratar hófu rannsókn á mögulegum embættisbrotum forsetans. Á furðulegum blaðamannafundi með Sauli Niinistö, forseta Finnlands, jós Trump úr skálum reiði sinnar og ýjaði meðal annars sterklega að því að Schiff væri með lítið typpi.Hótaði hann fjölda málsókna vegna rannsóknarinnar á meintu samráði forsetaframboðs hans við Rússa fyrir forsetakosningarnar árið 2016 og vísaði til að hann væri búinn að láta rannsaka þá rannsókn. Fréttir hafa borist af því að Barr dómsmálaráðherra hafi meðal annars ferðast til Evrópu til að finna upplýsingar til að grafa undan rannsókn Robert Mueller sem lauk fyrr á þessu ári.
Þá veik Trump sér undan að svara spurningum blaðmanns um hvað hann vildi nákvæmlega að úkraínski forsetinn gerði varðandi Biden-feðgana. Þess í stað helti forsetinn sér yfir blaðamanninna og fjölmiðla almennt og sakaði þá um að vera „spillta“.
A reporter asked Trump what exactly he wanted the Ukrainian president to do in regard to the Bidens.
— POLITICO (@politico) October 2, 2019
Trump sidestepped the question with a tangent, but the reporter asked it again and again. He then berated the reporter https://t.co/lg2TUKKB5O pic.twitter.com/jxwCxW5k6F