Kraftmeiri stormur í kortunum á sunnudag Kristín Ólafsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 8. nóvember 2019 14:39 Búast má við stormi um mestallt land á sunnudag. Vísir/vilhelm
Það brestur á með suðaustanstormi um landið suðvestanvert og á miðhálendinu í dag. Gul veðurviðvörun hefur verið virkjuð á allstóru svæði en kraftmeiri stormur er þó í kortunum fyrir sunnudag. Gul veðurviðvörun er í gildi fyrir landið suðvestanvert, Faxaflóasvæðið og miðhálendið í dag. „Það er vaxandi suðaustanátt hjá okkur og gular viðvaranir á Suðurlandi og Faxaflóa, einnig á höfuðborgarsvæðinu og á miðhálendinu. Það er hvassast undir Eyjafjöllum á Kjalarnesi og Hafnarfjalli og svo verður einnig mjög hvasst við fjöll á suðvestanverðu hálendinu. Þetta tekur gildi núna upp úr hádeginu og er alveg til fyrramáls,“ segir Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Útlit er fyrir að bæti jafnt og þétt í vind í dag og verður orðið bálhvasst í kvöld. „Það bætir í vind en er mismunandi hvenær er hvassast. Til dæmis verður hvassast á Kjalarnesi um miðja nótt og einnig undir Hafnarfjalli og í Borgarnesi en svo lægir nokkuð rösklega seint í nótt og snemma í fyrramálið.“ Helga segir að gott sé að binda niður lausamuni og fara að öllu með gát. Á laugardag er óhætt að segja að verði stund milli stríða því á sunnudag tekur að hvessa á ný. „Þá er aftur vaxandi vindur hjá okkur og það verður jafnvel meiri veðurhæð heldur er í dag og má búast við stormi um mestallt land. Fólk ætti að fylgjast vel með veðurspánni fyrir sunnudag.“
Veður Tengdar fréttir Búist við stormi á Faxaflóasvæðinu og á Suðurlandi Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi og á Faxaflóasvæðinu síðdegis og í kvöld þar sem búist er við stormi og allt að 25 metrum á sekúndu. 8. nóvember 2019 07:05 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira
Búist við stormi á Faxaflóasvæðinu og á Suðurlandi Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi og á Faxaflóasvæðinu síðdegis og í kvöld þar sem búist er við stormi og allt að 25 metrum á sekúndu. 8. nóvember 2019 07:05