Sjóræningjar rændu níu skipverjum af norsku skipi Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. nóvember 2019 23:41 Flutningaskipið MV Bonita. Mynd/Ugeland
Sjóræningjar hertóku í gær norskt flutningaskip og námu níu skipverja á brott með sér úti fyrir strönd Afríkuríkisins Benín. Skipið heitir MV Bonita og er gert út af norsku skipaútgerðinni Ugland. Útgerðin greinir frá málinu á heimasíðu sinni og segir að sjóræningjarnir hafi ráðist um borð í skipið um níu sjómílur frá höfninni í benínsku borginni Cotonou. Níu skipverjar, skipstjórinn og átta áhafnarmeðlimir, voru teknir í gíslingu og þeir fluttir á brott. Norska ríkisútvarpið hefur eftir benínskum miðlum að þeir skipverjar sem eftir voru á skipinu hafi tafarlaust tilkynnt yfirvöldum um atvikið. Bonita lagðist að bryggju í Cotonou síðdegis í gær. Lögregla og strandgæsla rannsaka nú afdrif skipverjanna sem var rænt en talið er að þeir séu allir filippseyskir ríkisborgarar. Fjölskyldum þeirra hefur verið gert viðvart um málið, að því er segir í tilkynningu Ugland. Þá hefur sérstakt neyðarteymi útgerðarinnar verið kallað út vegna málsins. Bonita er gerð út frá norska bænum Grimstad, þar sem Ugland er með höfuðstöðvar.
Benín Noregur Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira