Juventus missteig sig gegn Sassuolo Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. desember 2019 13:15 Ronaldo jafnaði fyrir Juventus. vísir/getty Juventus gerði jafntefli við Sassuolo, 2-2, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Juventus er með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar en Inter getur komist upp fyrir meistarana með sigri á SPAL í leik sem hefst klukkan 14:00. Leanardo Bonucci kom Juventus yfir með skoti af löngu færi á 20. mínútu. Aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Jérémie Boga fyrir Sassuolo þegar hann lyfti boltanum skemmtilega yfir Gianluigi Buffon í marki Juventus. Á 47. mínútu kom Francesco Caputo gestunum yfir með skoti sem Buffon missti klaufalega inn. Þetta var fjórða mark Caputos í síðustu þremur leikjum. Tuttugu mínútum síðar fiskaði Paolo Dybala vítaspyrnu sem Ronaldo jafnaði úr. Juventus sótti stíft undir lokin en hinn 18 ára Stefano Turati stóð sig frábærlega í sínum fyrsta leik fyrir Sassuolo. Lokatölur 2-2. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn