Drukkinn ferðamaður með of marga farþega Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. nóvember 2019 06:35 Mál af ýmsu tagi komu inn á borð lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann í vesturbæ Reykjavíkur um klukkan tvö í nótt. Ökumaðurinn reyndist erlendur ferðamaður, að því er segir í dagbók lögreglu, og er grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur. Þá voru einnig of margir farþegar í bílnum. Á níunda tímanum í gærkvöldi var bíll stöðvaður í Laugardalnum. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, vörslu slíkra efna og brot á vopnalögum. Þá ók hann einnig sviptur ökuréttindum. Þá stöðvaði lögregla erlendan ferðamann á Reykjanesbraut við Hvassahraun á 126 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Ferðamaðurinn var sektaður og hann greiddi sektina um hæl, að því er segir í dagbók lögreglu. Sautján ára stúlka var stöðvuð í Árbæ skömmu fyrir miðnætti í gær vegna gruns um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Þá hafði hún aldrei öðlast ökuréttindi. Í dagbók lögreglu segir að málið hafi verið afgreitt með aðkomu móður stúlkunnar og tilkynningu til Barnaverndar. Þá var maður handtekinn á heimili í Kópavogi í gærkvöldi grunaður um vörslu og ræktun fíkniefna. Lögregla lagði hald á efni, plöntur og búnað til slíkrar iðju á heimilinu. Maðurinn var látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Hafnarfjörður Kópavogur Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Segir stjórnina láta hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Sjá meira