Ronaldo skaut Juventus á toppinn Arnar Geir Halldórsson skrifar 15. desember 2019 15:45 Þægilegt dagsverk vísir/getty Cristiano Ronaldo var maðurinn í Torínó borg í dag eins og stundum áður þegar Juventus fékk Udinese í heimsókn í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Heimamenn voru miklu betri í fyrri hálfleik og óðu í færum. Ronaldo opnaði markareikninginn strax á níundu mínútu og hann tvöfaldaði forystuna á 37.mínútu. Leonardo Bonucci sá til þess að Juventus færi með þriggja marka forystu í leikhléið þegar hann skoraði á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik setti Juventus í hlutlausan gír og sigldi öruggum sigri heim og kom það ekki að sök þó Ignacio Pussetto hafi náð að klóra í bakkann fyrir gestina í uppbótartíma. Juventus með eins stigs forystu á toppi deildarinnar en Inter getur endurheimt toppsætið í kvöld þegar liðið mætir Fiorentina. Ítalski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn