Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni en engin alvarleg slys á fólki.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar er greint frá því að stórri rútu hafi verið ekið utan í krana á dráttarbifreið á Grindvíkurvegi þar sem verið var að aðstoða ökumann með bilaðan bíl.
Ökumaður rútunnar nam hins vegar ekki staðar heldur fór af vettvangi.
Þá urðu tvö umferðaróhöpp í morgun. Annað varð á Garðvegi þar sem bíll rann út af veginum og festist. Hitt var síðan á Reykjanesbraut og var minniháttar.
