Myndarlegt regnsvæði á leið til landsins á morgun Atli Ísleifsson skrifar 19. maí 2020 07:08 Væntanlega verður hlýjast á Vesturlandi í dag, um 13-14 stig þar sem best lætur. Veðurstofan
Útlit er fyrir að veðrið í dag verði svipað og í gær þar sem vindur verður yfirleitt hægur og breytilegur. Má reikna með rúmlega tíu metrum á sekúndu úr austri við suðurströndina. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á norðurhelmingi landsins verði víða léttskýjað og sólríkt. „Sunnantil eru ský á lofti og einhverjir dropar gætu fallið úr sumum þeirra. Væntanlega verður hlýjast á Vesturlandi í dag, um 13-14 stig þar sem best lætur. Það má með sanni segja að síðustu vikur hafi verið lítil úrkoma á landinu. Á því verður breyting á morgun, þá nálgast lægð úr suðri og henni fylgir myndarlegt regnsvæði. Það mun rigna í öllum landshlutum á morgun og það í talsverðu magni á suðurhelmingi landins. Vindur verður úr austri eða suðaustri, víðast hvar kaldi eða strekkingur að styrk, en allhvass eða hvass strengur með suðurströndinni. Rigningin á morgun er kærkomin fyrir gróður, sem þarf vætu til að vaxa og dafna. Einnig mun rigningin hjálpa í baráttunni við gróðurelda, sem oft láta á sér kræla í þurrkatíð á vorin,“ segir á vef veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan og suðaustan 8-15 m/s, en 15-20 syðst á landinu fram yfir hádegi. Víða rigning, talsverð úrkoma um landið sunnanvert. Hiti 7 til 13 stig. Á fimmtudag (uppstigningardagur): Sunnan 8-13 og skúrir, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands. Á föstudag: Ákveðin austanátt og skýjað, en úrkomulítið. Norðlægari og rigning austanlands um kvöldið. Hiti frá 7 stigum austast á landinu, upp 16 stig á Norður- og Vesturlandi. Á laugardag: Norðaustanátt og rigning um landið norðan og austanvert, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á sunnudag og mánudag: Breytileg átt og líkur á vætu í flestum landshlutum. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira