Bein útsending: Úrslitin ráðast í Hack The Crisis Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. maí 2020 11:30 Um er að ræða „stærsta stafræna hakkaþon“ sem haldið hefur verið á Íslandi. hack the crisis
Nýsköpunarkeppninni Hack the Crisis Iceland lýkur á hádegi í dag. Beina útsendingu frá verðlaunaafhendingunni má sjá hér að neðan. Að sögn aðstandenda er um að ræða stærsta starfræna „hakkaþon“ sem haldið hefur verið hér á landi en næstum 200 tóku þátt í mótinu. Hakkaþonið hófst 22. maí og stóð yfir alla helgina í formi beinna vefútsendinga og fjarfunda. Alls bárust yfir 64 lausnir, sem gera samtals 128 lausnir, því teymin máttu skila lausninni í tvo flokka. Skipuleggjendur segja að í ljósi áhugans hafi þurft að framlengja dómarastörf um einn dag til að velja tólf bestu verkefnin til kynningar í fimm flokkum. Flokkarnir eru: Nýskapandi lausnir í heilbrigðisþjónustu Nýskapandi lausnir í félags- og velferðarmálum Nýskapandi lausnir í menntamálum Nýskapandi lausnir í atvinnumálum Opinn flokkur Þau teymi sem sigra í hverjum flokki fá 500.000 kr. í verðlaunafé, Design thinking hraðal og aðstöðu á frumkvöðlasetri þar sem sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Reykjavíkurborgar annast fræðslu, stuðning og eftirfylgni. Keppendur komu hvaðanæva að úr heiminum og voru sum keppnisteymanna samsett af fólki í mismunandi heimsálfum. Þátttakendur utan Íslands voru m.a. frá Englandi, Bandaríkjunum, Kína, Brasilíu, Danmörku, Egyptalandi, Mexíkó og Kólumbíu. Úrslit verða tilkynnt í dag í beinu streymi frá Stúdíó Sýrlandi og hefst verðlaunaafhendingin klukkan 12.00. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun vera með opnunarræðu og afhenda verðlaun. Nánari upplýsingar um keppnina má nálgast hér.
Tækni Nýsköpun Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira