Katrín Tanja: Ég bið ykkur innilega afsökunar ef ég er að fara yfir strikið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2020 08:00 Katrín Tanja Davíðsdóttir setti þessa mynd inn á Instagram síðu sína. Mynd/Instagram
Íslensku CrossFit drottningarnar eru stjörnur á heimsvísu og þær blönduðu sér allar í réttindabaráttu svartra í gær í kjölfarið af margra daga óeirðunum og mótmælum í Bandaríkjunum. Íslenska CrossFit stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir æfir þessa dagana út í Bandaríkjunum og upplifir því ástandið í Bandaríkjunum frá fyrstu hendi. Hún ákvað að tjá sig um stöðuna í réttindabaráttu svartra á Instagram síðu sinni. „Við getum hætt að berjast fyrir þessu þegar jafnrétti er orðið normið,“ hefur Katrín Tanja pistil sinn á Instagram. „Ég trúi því ekki að við séum að ræða um grunnréttindi fólks og að það sé komið fram við þá eins og aðra en samt þurfum við þess. Ég er svo langt frá því að geta skilið það hvernig mannfólkið getur komið fram við aðra með slíku óréttlæti bara vegna húðlitar þess. Það ætti að vera ekkert annað en gerð sálar þinnar sem á að skipta máli. Ég er niðurbrotin, leið og verð óglatt af því að sjá hver staðan er núna og hvað sé í gangi í heiminum í dag. Tíminn fyrir breytingar er runninn upp,“ skrifaði Katrín Tanja. „Ég átta mig vel á því að ég skil ekki þetta að fullu og gæti verið að segja eitthvað vitlaust núna. Ég bið ykkur innilega afsökunar ef ég er að fara yfir strikið en ég vil miklu frekar segja eitthvað en að segja ekkert. Heimurinn þarf á því að halda að þeir sem þetta bitnar ekki á verði jafn hneykslaðir og þeir sem verða fyrir þessu. Þögnin er ekki valkostur,“ skrifar Katrín Tanja. „Heimurinn þarf að sameinast og berjast gegn þessu allur sem einn. Við þurfum að berjast gegn þessu með góðmennsku, ást og samúð. Hvar sem mannkynið fer þar er möguleiki fyrir góðvild. Við erum öll eitt og við eigum að halda áfram að berjast þar til að jafnrétti er orðið normið,“ skrifaði Katrín Tanja og endaði á að setja myllumerkið „#BlackLivesMatter“ eða „Líf svarta skiptir máli“ en það smá sjá allan pistil hennar hér fyrir neðan. View this post on Instagram We can stop when EQUAL is the NORM. - I can t believe we are having to have conversations about the basic rights of people being treated equal .. yet that is what we HAVE TO DO!! I am so far away from being able to understand how humans can treat others with such injustice solely from the color of their skin. It should be nothing but the shape your soul that matters. I am heartbroken, sad & sickened to my stomach with what is & has been happening in the world. The time to change is now. - I realize I do not understand & I might be saying all the wrong things right now & I truly apologize if I offend or cross lines I should not .. but I would much rather say SOMETHING that nothing at all. This world needs those who are not affected to be as OUTRAGED as those who are. Silence is not an option. ???????????????? - The world needs to come together as ONE to fight this. Fight this with KINDNESS, LOVE & EMPATHY. Wherever there is humanity, there is an opportunity for kindness. We are all one & we should all keep fighting for this until equality is the norm. #BlackLivesMatter A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) on Jun 1, 2020 at 9:42am PDT Hér fyrir neðan má síðan sjá hvað þær Anníe Mist Þórisdóttir og Sara Sigmundsdóttir settu inn á sína síðu. Sara setti mynd og svo nokkrar táknmyndir um að allir kynþættir lifi í sátt. Anníe Mist setti aftur á móti inn tilvitnun í blökkumannaleiðtogann Martin Luther King yngri. Martin Luther King, Jr. var frægasti leiðtogi mannréttindabaráttu svartra á sjötta og sjöunda áratug 20. aldarinnar en hann var síðan ráðinn af dögum í Memphis árið 1968. Tilvitnunin sem Anníe Mist setti inn er á ensku „In the end, we will remember not the words of our enemies, but the silence of our friends“ en á íslensku „Að lokum, munum við ekki muna eftir orðum óvina okkar, heldur þögn vina okkar.“ View this post on Instagram In the end, we will remember not the words of our enemies, but the silence of our friends - Martin Luther King Jr. A post shared by Annie Thorisdottir (@anniethorisdottir) on Jun 2, 2020 at 4:36am PDT View this post on Instagram ?????????????????? ? ? #blackouttuesday A post shared by Sara Sigmundsdo´ttir (@sarasigmunds) on Jun 2, 2020 at 2:07am PDT
CrossFit Dauði George Floyd Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Íslenski boltinn Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Körfubolti „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Fleiri fréttir „Við þurfum að vinna leik á mánudaginn“ Breiðablik mun berjast um sæti í Bónus deildinni „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Daníel gaf Elíasi ástæðu til að fagna Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Logi sá um sitt en liðsfélagarnir brugðust Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni „Lykilmaðurinn“ Kolbeinn úr leik næstu vikurnar Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Yamal felldi tár en ætti að ná HM Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Þrjár systur unnu þrefalt með HK Búið spil hjá Tómasi sem þarf að treysta á félaga sína til að ná titlinum Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira