Höfundur bókarinnar um Flugsögu Íslands hefur óskað eftir því að Minjastofnun grípi til skyndifriðunar til að koma í veg fyrir að borgin rífi flugskýli í Skerjafirði. Hann segir skýlið frá tíma sjóflugvélanna, eldra en flugvöllinn, og einhverjar merkustu minjar um upphaf atvinnuflugs á Íslandi. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Forstjóri Flugfélagsins Ernis sagði frá því í gær að borgin hefði tilkynnt að vegna nýs skipulags ætti að rífa flugskýli félagsins í Skerjafirði.

„Mér eiginlega bara snarbrá vegna þess að þetta er elsta uppistandandi bygging á flugvallarsvæðinu og að grunninum til er hún algerlega íslensk, frá því fyrir stríð,“ segir flugáhugamaðurinn Eggert Norðdahl, höfundur Flugsögu Íslands.
Flugskýlið er nefnilega ekki stríðsminjar, eins og flest önnur skýli á vellinum, heldur segir Eggert að það sé byggt árið 1938. Skýlið sé frá árum sjóflugvélanna og því íslenskar flugminjar frá því fyrir tíma Reykjavíkurflugvallar en frá skýlinu lá skábraut niður í sjó.

Eggert segir skýlið ómetanlegar flugminjar.
„Vegna þess að þetta er elsta uppistandandi flugskýli á Íslandi, svo ég viti til.“
Eggert setur þó þá fyrirvara að vera kunni að eldra skýli, sem rifið var á Akureyri, hafi síðar verið endurreist úti í sveit. Þá sé hluti skýlis á Sandskeiði frá sama tíma.
Eggert segist strax í morgun hafa sent erindi til Minjastofnunar. Hann vill skyndifriðun enda hafi skýlið verið byggt yfir TF-ÖRN, sjóflugvélina sem markaði upphaf samfellds atvinnuflugs á Íslandi og telst fyrsta flugvél í sögu Icelandair.

„Þetta er tvímælalaust bara upphaf atvinnuflugs á Íslandi, svona fyrir utan Junkers-flugbátana, flugvélarnar sem voru á flotbátum hérna 1928 til 1931. Ef þú myndir finna Junkers-vél, þá er hún kannski merkilegri, en þetta er bara það almerkilegasta sem til er.
Og það eru svo fáir sem átta sig á því að þetta er þarna, bara í upphaflegri mynd, í fullri notkun,“ segir Eggert Norðdahl.

Samgönguráðherra var einnig brugðið við fréttirnar af tilkynningu borgaryfirvalda til Flugfélagsins Ernis.
„Ég verð að segja eins og er að mér finnst það illskiljanlegt, sem gömlum sveitarstjórnarmanni, ef satt reynist, að það sé gengið svona fram gagnvart fyrirtæki sem hefur starfað og þjónustað borgarana hér um áratugaskeið, og eiginlega hálf ómannleg nálgun, ef satt reynist. En ég ætla að skoða málið,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: