Erlent

Fjar­lægja „Don‘t mention the war“-þátt Hótels Tinda­stóls

Atli Ísleifsson skrifar
Basil Fawlty í túlkun John Cleese í umræddum þætti.
Basil Fawlty í túlkun John Cleese í umræddum þætti. Skjáskot

Streymisveita í eigu breska ríkissjónvarpsins BBC hefur fjarlægt einn þátt úr þáttaröðinni Hótel Tindastól (e. Fawlty Towers) – þátt þar sem hóteleigandinn Basil Fawlty, í túlkun leikarans John Cleese, fer ítrekað með setninguna „Ekki minnast á stríðið” eða „Don’t mention the war“.

Framleiðslufyrirtæki og streymisveitur hafa síðustu daga fjarlægt einstaka þætti og þáttaraðir af veitum sínum í kjölfar mótmæla í tengslum við dauða Bandaríkjamannsins George Floyd. Þannig hafa BBC og Netflix fjarlægt gamanþættina Little Britain sökum gagnrýni í garð atriða þar sem leikarinn David Walliams er málaður svartur í framan.

Talsmaður BBC segir að ákveðið hafi verið að fjarlægja Little Britain þar sem „tímarnir hafi breyst“.

Einn vinsælasti gamanþáttur sögunnar

Fawlty Towers var fyrst sýndur á áttunda áratug síðustu aldar og er einn vinsælasti gamanþáttur sögunnar. Alls voru þáttaraðirnar tvær og þættirnir í heildina tólf. Segir þar frá hóteleigandanum misheppnaða Basil Fawlty, eiginkonu hans Sybil, spænska þjóninum Manuel og þjónustustúlkunni Polly og samskiptum þeirra við gesti hótelsins.

Guardian segir nú frá því að búið sé að fjarlægja einn þátta Fawlty Towers, en í þættinum gistir þýsk fjölskylda á hótelinu. Eigandi hótelsins, Basil Fawlty, sem hefur þá fengið höfuðhögg, leggur þar mikla áherslu á að starfsfólk hótelsins skuli alls ekki minnast á „stríðið“ við gestina. Sömuleiðis er mikið um setningar sem einkennast seint af pólitískri rétthyggju.

Fara reglulega yfir þættina

Í umræddum þætti, sem var fyrst frumsýndur árið 1975, er einnig að finna aðriði þar sem Basil Fawlty virðist í áfalli þegar hann vaknar á sjúkrahúsi eftir höfuðhöggið og sér að yfir honum stendur svartur læknir.

Guardian segir frá því að talsmaður streymisveitunnar UKTV hafi ítrekað neitað að segja til um ástæður þess að þátturinn hafi verið fjarlægður eða þá hvort að ákvörðunin sé varanleg.

„Við tjáum okkur ekki um einstaka titla. En við förum reglulega í gegnum þættina okkur, klippum, bætum við viðvörunum, breytum sýningartíma – sem er nauðsynlegt til að tryggja að rásir okkar mæti væntingum áhorfenda.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×