Kappræður forsetaframbjóðendanna Guðna Th. Jóhannessonar og Guðmundar Franklíns Jónssonar hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Kappræðurnar voru sýndar í beinni útsendingu á Stöð 2 í gærkvöldi.
Mikill hiti var í umræðum frambjóðendanna og sakaði Guðmundur Franklín Guðna meðal annars um að ljúga að þjóðinni varðandi kostnað kosningabaráttunnar.
Greinilegt var að Guðna var ekki skemmt yfir mörgum ummælum Guðmundar og spurði Guðni hann að því hvort hann væri stoltur af framgöngu sinni í þættinum þegar hann fékk sjálfur tækifæri til þess að spyrja mótframbjóðanda sinn.
Áður hafði Guðmundur spurt Guðna hvort hann væri stoltur af því að vera Íslendingur.
Miðað við viðbrögð netheims er greinilegt að augu margra voru á frambjóðendunum í gærkvöldi. Skiptar skoðanir voru á frammistöðu þeirra en margir tístverjar virtust nokkuð hneykslaðir á Guðmundi Franklín.
Heimir Már í sögulegum kosningakappræðum á Stöð 2 eftir að Guðmdundur Franklín spurði Guðna Th hvort hann væri stoltur af því að vera Íslendingur
— Valur Grettisson (@valurgr) June 11, 2020
Heimir Már: Ertu þú stoltur af því að vera Íslendingur Guðmundur?
Guðmundur Franklín: Absolutely!
Guðmundur Franklín vs. Guðni á Stöð 2. Það þarf að stoppa þetta af, án gríns.
— Theódóra (@Skoffin) June 11, 2020
Djöfull er ég feginn að Guðmundur Franklín er ekki öryggisventill eins eða neins.
— Björn Kristjánsson (@bjossiborko) June 11, 2020
Guðmundur Franklín segir að það ekki ekki að horfa um öxl og til fortíðar. Nuddar Guðna svo uppúr einhverju sem gerðist í fortíðinni og talar hann niður. pic.twitter.com/LdCFYYA3gl
— krullidem (@StefnHrafn) June 11, 2020
Ef við viljum hafa einhverskonar alvöru lýðræði sitjum við uppi með að Guðni og Guðmundur Franklín eigi í fullkomlega tilgangslausum rökræðum sem enginn vill horfa á fyrir kosningar sem allir viti hvernig fara upp á embætti sem í besta falli virkar sem snuð fyrir hrædda þjóð.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) June 12, 2020
Þetta er svo frábært sjónvarp. Gæinn er sjálfstætt starfandi meme-verksmiðja. pic.twitter.com/oavhFaCCPT
— Sveinn Birkir (@sveinnbirkir) June 11, 2020
Kappræður Guðna og Gúnda á Stöð 2 núna eru one hell of a great tv
— Oddur Ævar (@odduraevar) June 11, 2020
Kappræður milli Guðna og Guðmundar Franklín. Sá síðarnefndi talar mikið, hátt, grípur frammí fyrir fólki, er aggressívur á köflum, og stoppaður af spyrli margsinnis. Skrítnar og á köflum stórfurðulegar kappræður.
— Þórður Guðmundsson (@thordurgudmund2) June 11, 2020
Þegar ég kom fyrst heim fullur og pabbi beið vakandi eftir mér. pic.twitter.com/MqjtkykEzH
— Arnar (@ArnarVA) June 11, 2020
Horfi á kappræður Guðna forseta við einhvern hrokafyllsta furðufugl sem ég hef séð í opinberri umræðu. Er ekki örugglega verið að vinna að því að breyta stjórnarskránni þannig að það þurfi talsvert fleiri undirskriftir til að komast í framboð? #kosningar2020
— Guðmundur Hörður (@gudmundurhordur) June 11, 2020
Guðmundur Franklín á Stöð 2 pic.twitter.com/bLWwUdKdWm
— Lukkutröll (@tinnamjoll) June 11, 2020
Forsetakappræður gærkvöldsins eru góð áminning um það hvað við eigum kurteisan, kláran og góðan forseta
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) June 12, 2020
Er Guðmundur Franklín hugsanlega Kristján Jóhannsson í einhverju method acting hlutverki sem gekk allt allt of langt? Hefur einhver séð Guðmund og Kristján saman? pic.twitter.com/te7wT2ALOd
— Gunnar Dofri (@gunnardofri) June 11, 2020