Gera við snjalltækin og hvetja fólk út í frisbígolf á meðan Smartfix ehf 3. júlí 2020 09:44 Bergljót Kristinsdóttir og Benedikt Reynir Andrésson reka Smartfix ehf ásamt Sebastian Stefanowicz. Þau gera við allar gerðir snjalltækja ásamt því að selja frisbígolfgræjur. Vilhelm „
Frisbígolf og farsímaviðgerðir fara mjög vel saman. Það verða ákveðin samlegðaráhrif, fólk getur notað tímann til að spila folf meðan síminn er í viðgerð,“ segir Bergljót Kristinsdóttir á léttu nótunum en hún rekur Smartfix ehf og Frisbígolfbúðina ásamt Sebastian Stefanowicz og Benedikt Reyni Andréssyni. Þau gera þó ekki einungis við farsíma heldur sérhæfa sig í öllum snjalltækjum og tölvum. Gera við allar gerðir snjalltækja „Upphaflegt markmið var að gera við síma, spjaldtölvur og apple tölvur en við höfum bætt við okkur viðgerðum á öllum tegundum tölva og jaðartækjum snjallsíma og spjaldtölva svo sem earpods, hýsingum og snjallúrum ásamt viðgerðum á drónum. Það veitir enginn annar slíka alhliða þjónustu,“ segir Bergljót. Bergljót segir það oft borga sig að gera við tækin og Smartfix vilji stuðla að betri nýtingu og minna kolefnaspori. Smartfix ehf er til húsa að Bolholti 4. Bilað tæki er ekki ónýtt „Við viljum stuðla að betri nýtingu tækja og þar með leggja áherslu á að allir geti gert eitthvað til að sporna gegn auknum áhrifum CO2 í andrúmsloftinu en framleiðsla raftækja á töluverðan þátt í þeirri aukningu. Vandamálið er að þegar tækin bila veit fólk oft ekki hvað það á að gera og telur hlutinn einfaldlega ónýtan. Það borgar sig þó oft að láta gera við. Það eru helst ódýrustu týpurnar sem ekki eru viðgerðar virði. Það verða ekki svo miklar breytingar á tækjunum þó nýrri týpur komi á markaðinn. Oft þarf bara að skipta út hleðslutengingu eða rafhlöðu en það hægist verulega á símanum þegar rafhlaðan fer að gefa sig og fólk gefst þá upp á símanum. Eins er auðvelt að skipta út skjám sem brotna. Við skoðum tækið og látum fólk vita hver kostnaðurinn af viðgerðinni verður og stöndum við hann,“ segir Bergljót. Sprenging í iðkun frisbígolfs Hægt er að fá leigðan síma meðan á viðgerð stendur ef nauðsyn krefur. Annars segir Bergljót flesta eiga að komast af án símans í einn dag og lausan tíma mætti vel nota í annað, til dæmis frisbígolf. Litríkir frisbídiskar setja mikinn svip á búðina. Algjör sprenging hefur orðið í iðkun frisbígolfs enda ódýr og skemmtileg útiíþrótt fyrir fjölskyldur og hópa. „Það er oft mikið um að vera í búðinni hjá okkur enda er litríkt hér inni og bjart og skemmtileg stemming. Við tókum við rekstri Frisbígolfbúðarinnar fyrir rúmu ári síðan í umboði eigenda hennar en mikill vöxtur er í iðkun á frisbígolfi á Íslandi og má segja að algjör sprenging hafi orðið í sumar,“ segir Bergljót. „Enda er þetta mjög sniðugt útisport fyrir fjölskylduna og vinahópa. Þetta er ódýrt sport og startkostnaður lítill. Við erum líka eina frisbígolfbúðin á landinu sem býður upp á sérstaka ráðgjöf.“ Smartfix ehf Bolholti 4 er opið virka daga frá 10 til 18 og laugardaga 11 til 14.
Frisbígolf Tækni Heilsa Mest lesið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Fimm hlutu bókmenntaverðlaun kvenna og kvára Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Fleiri fréttir Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira