Inter klúðraði leik sem þeir voru með í höndunum | Andri kom inn á undir lokin Ísak Hallmundarson skrifar 5. júlí 2020 17:15 Conte og hans menn fóru illa að ráði sínu í dag. getty/Mattia Ozbot Inter tók á móti Bologna í ítölsku Serie A deildinni í dag. Inter þurfti á þremur stigum að halda en náðu að tapa leiknum eftir að hafa verið marki yfir og manni fleiri. Þetta byrjaði vel fyrir Inter því á 22. mínútu kom Romelu Lukaku þeim yfir. Á 57. mínútu fékk Roberto Soriano leikmaður Bologna síðan að líta rauða spjaldið og bjuggust flestir við því að sigur Inter væri í höfn. Annað kom á daginn. Inter fékk vítaspyrnu á 62. mínútu en Lautaro Martinez misnotaði spyrnuna og staðan því enn 1-0. Á 74. mínútu jafnaði Musa Juwara metin fyrir Bologna og þrem mínútum síðar fékk Alessandro Bastoni leikmaður Inter sitt annað gula spjald og þar með rautt. Aftur jafnt í liðum, tíu leikmenn á móti tíu. Musa Barrow kom Bologna yfir á 80. mínútu og mögnuð endurkoma Bologna orðin staðreynd. Það dró síðan til tíðinda fyrir okkur Íslendinga þegar hinn 18 ára gamli Andri Fannar Baldursson kom inn á fyrir Bologna á 88. mínútu leiksins og fékk þar með að spila eitthvað í kringum átta mínútur á San Siro, en undirritaður er nokkuð viss um að enginn Íslendingur hafi spilað á San Siro jafn ungur að aldri. Ótrúlegur leikur og 1-2 útisigur Bologna staðreynd. Með þessum úrslitum er nánast útilokað að Inter vinni ítölsku deildina en þeir eru nú ellefu stigum á eftir Juventus á toppi deildarinnar. Bologna fer upp í níunda sæti með sigrinum, fimm stigum á eftir Milan í sjötta sætinu, sem veitir þátttökurétt í Evrópudeildinni. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti