Sænskur leikstjórnandi til FH Sindri Sverrisson skrifar 22. júlí 2020 13:15 Zandra Jarvin hefur spilað með yngri landsliðum Svíþjóðar.
FH hefur gert samning við sænsku handknattleikskonuna Zandra Jarvin um að spila með liðinu næstu tvö árin. Jarvin er tvítug og spilar sem leikstjórnandi en hún hefur leikið með sænska liðinu Spårvägen undanfarin ár, sem og með yngri landsliðum Svíþjóðar. „Við FH-ingar erum svakalega spenntir fyrir þessum leikmanni,“ sagði Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH í fréttatilkynningu. „Við höfum séð fjölmarga leiki með henni og fær hún einnig mjög góð meðmæli frá þjálfurum í Svíþjóð. Hún mun án efa styrkja okkur verulega,“ sagði Ásgeir. FH vann sig upp úr Grill 66 deildinni á síðustu leiktíð og leikur því í Olís-deildinni í vetur. „Við ætlum okkur góða hluti í Olís-deildinni næsta vetur og munum áfram byggja á þeim ungu og öflugu stelpum sem hafa fengið sviðið í Grill 66 deildinni undanfarin ár en eru núna tilbúnar á stóra sviðið. Það eru spennandi tímar framundan hjá meistaraflokki kvenna en markmiðið er að styrkja liðið enn frekar fyrir átökin í haust,“ sagði Ásgeir.
Íslenski handboltinn Olís-deild kvenna FH Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Fleiri fréttir Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Sjá meira