Markalaust í fyrsta leik Zlatans með Milan Henry Birgir Gunnarsson skrifar 6. janúar 2020 16:00 Zlatan kemur inn af bekknum í dag. vísir/getty Innkoma Zlatan Ibrahimovic náði ekki að skila AC Milan þremur stigum í dag er liðið tók á móti Sampdoria á San Siro. Leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Zlatan hóf leik á bekknum kom inn af bekknum á 55. mínútu og var fljótur að láta að sér kveða. Hann var mikið í sóknarspilinu og átti skalla af stuttu færi sem vildi ekki í markið. Annars gekk félögum hans ekkert of vel að búa til opin færi fyrir Svíann. Það virkaði þó meira líf í Milan-mönnum með Zlatan á vellinum en liðið er eftir sem áður í tólfta sæti deildarinnar en Sampdoria er í sautjánda sæti, rétt fyrir ofan fallsæti. Ítalski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn