Birkir Bjarnason sat allan tímann á varamannabekknum þegar Brescia laut í lægra haldi fyrir AC Milan, 0-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Króatíski framherjinn Ante Rebic skoraði eina mark leiksins á 71. mínútu.
Þetta var þriðji sigur Milan í röð en liðið er komið upp í 6. sæti deildarinnar með 31 stig.
Zlatan Ibrahimovic lék allan leikinn fyrir Milan en liðið er taplaust síðan hann kom frá Los Angeles Galaxy.
Brescia hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu fjórum leikjum og er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi frá öruggu sæti.
Milan ekki tapað síðan Zlatan kom
