Ísland tapaði fyrir Noregi, 31-28, í þriðja leik sínum í milliriðli II á Evrópumótinu í handbolta í kvöld.
Íslenska liðið var heillum horfið í upphafi leiks og það norska skoraði fyrstu sjö mörkin. Eftir það var róðurinn mjög þungur.
Íslenska vörnin var galopin í fyrri hálfleik og Norðmenn skoruðu nánast í hverri sókn. Staðan í hálfleik 19-12, Noregi í vil.
Allt annað var að sjá til íslenska liðsins í seinni hálfleik. Vörnin var miklu betri og Viktor Gísli Hallgrímsson varði vel í markinu. Í sókninni bar mest á Ólafi Guðmundssyni sem skoraði sex mörk.
Norðmenn hleyptu þó Íslendingum aldrei nær sér en þremur mörkum. Lokatölur 31-28, Noregi í vil.

