Innlent

Ræddu siðareglur við sérfræðinga ÖSE

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Vísir/Vilhelm

Sérfræðingar frá Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu funduðu með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun í tengslum við endurskoðun siðareglna alþingismanna. Formaður nefndarinnar segir meðal annars hafa komið fram á fundinum að allt of algengt sé í Evrópu að slíkar siðareglur hafi verið notaðar gegn stjórnarandstöðunni.

Um hríð hefur staðið yfir vinna við endurskoðun siðareglna alþingismanna. Drög að breyttum reglum voru send Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE til umsagnar og í framhaldinu vakti ÖSE athygli Alþingis á því að hjá stofnuninni starfi sérfræðingar sem búi yfir mikilli reynslu og sérþekkingu er varða siðferðileg viðmið fyrir kjörna fulltrúa. Úr varð að tveir sérfræðingar frá ÖSE heimsækja Alþingi í dag og á morgun.

Sjá einnig: Heimsækja þingið vegna endurskoðunar reglna

Þeir funda meðal annars með forseta Alþingis og formönnum þingflokka og í morgun voru þeir gestir stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir er formaður nefndarinnar, segir ýmsa álitaþætti tengda siðareglum hafa meðal annars verið til umfjöllunar.

„Að mínu mati þá finnst mér mjög mikilvægt að endurskoða bæði hvernig þessi nefnd virkar, að hún virki ekki eftir flokkspólitískum dráttum, að það sé hafið yfir allan vafa í málsmeðferð fyrir nefndinni. Og það sé líka mjög skýrt hvaða takmarkanir siðareglur geta sett á tjáningarfrelsi þingmanna, sérstaklega þingmanna í stjórnarandstöðu,“ segir Þórhildur Sunna.

Sjálf er hún ein þriggja þingmanna sem siðanefnd hefur úrskurðað að hafi gerst brotlegir við siðareglur. Í hennar tilfelli varðar það ummæli hennar um Ásmund Friðriksson en hinir þingmennirnir tveir eru Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson í úrskurði er varðar Klaustursmálið svokallaða. 

Algengt að siðareglur séu nýttar gegn stjórnarandstæðingum

„Það barst í tal á þessum fundi að það sé því miður algengt í Evrópu að svona siðareglur hafi verið notaðar til þess að refsa stjórnarandstöðunni og til þess að svona ráðast á stjórnarandstöðuna með ómálefnalegum hætti og nota siðareglurnar til þess í raun og veru að minnka getu stjórnarandstæðinga til að sinna sínu mikilvæga starfi,“ segir Þórhildur Sunna.

Hún kveðst ekki sannfærð um að þær breytingar á siðareglum sem eru í farvatninu taki nægilega vel á þessum þætti. „Mér finnst til dæmis vanta algjörlega inn í þessi drög að það sé tekið á þessu viðmóti að sannleiksgildi ummæla skipti engu máli, heldur hvernig ummæli eru sett fram og í hvaða samhengi,“ segir Þórhildur Sunna. „Það skilur okkur eftir á mjög fáránlegum stað að það skipti engu máli hvað þú segir heldur hvernig þú segir það. Og ég get ekki skilið hvernig siðareglur ættu ekki að taka á innihaldi eða sannleiksgildi ummæla.“

Þingmenn séu kjörnir til þess að tjá skoðanir sínar og allar reglur sem geti sett því tjáningarfrelsi skorður þurfi að vera takmarkaðar og mjög skýrar.


Tengdar fréttir

Siðareglur til endurskoðunar

Forseti Alþingis undirbýr nú endurskoðun siðareglna fyrir alþingismenn. Málið á dagskrá sumarfundar forsætisnefndar. Endurskoða á framkvæmd og umgjörð reglnanna fremur en hátternisreglurnar sjálfar.

Siðanefnd hafi „dæmt sig úr leik” með úrskurði sínum

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, nýr formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, telur ekkert athugavert við það að hún gegni formennsku í nefndinni þrátt fyrir að hún hafi verið fundin sek um brot á siðareglum.

Forsætisráðherra segir að endurskoða þurfi siðareglur fyrir alþingismenn

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að endurskoða þurfi bæði siðareglur fyrir alþingismenn og málsmeðferðarreglur sem þeim fylgja. Hún er ekki sammála því að endurskoða þurfi ákvæði um gildissvið reglnanna og telur að það eigi að skýra rúmt. Þingmennska sé ekki hefðbundið starf og siðareglurnar eigi að gilda alls staðar þar sem þingmenn eru á opinberum vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×