Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur sagt vinum sínum að hann verði áfram hjá félaginu þó svo að bann þeirra frá Evrópukeppnum standi. Þetta kom fram á vef BBC fyrr í dag.
Pep Guardiola has told friends he intends to stay at Manchester City despite the club's two-year ban from the Champions League.
— BBC Sport (@BBCSport) February 17, 2020
Full story: https://t.co/ExNOIarOZF#UCL#MCFCpic.twitter.com/edP4W5NL81
Manchester City var dæmt í tveggja ára bann frá Evrópukeppnum af knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, vegna brota á fjárhagsreglugerð sambandsins [Financial Fair Play Regulations]. Það þýðir að Manchester City mun ekki geta keppt í keppnum á vegum UEFA, Meistaradeild Evrópu eða Evrópudeildinni, fyrr en tímabilið 2022/2023 ef bannið stendur.
Samningur Guardiola við Manchester City rennur út 2021 og hefur mikið verið ritað og rætt um það hvort hann klári samning sinn en liðið hefur ekki staðið undir gríðar háum væntingum sínum á leiktíðinni.
Talið er að hinn 49 ára gamli Guardiola muni í fyrsta skipti tjá sig um málið á blaðamannafundi á miðvikudaginn kemur. Man City mætir þá West Ham United í úrvalsdeildarleik sem var frestað þann 9. febrúar vegna veðurs.
Í samningi Pep við enska félagið ku vera ákvæði sem gerir honum kleift að ganga frá borði eftir yfirstandandi tímabili lýkur. Er talið að hann muni nýta sér téð ákvæði takist City ekki að fá banninu hnekkt en félagið hefur áfrýjað dómi UEFA til alþjóða íþróttadómstólsins, CAS.
Manchester City er sem stendur í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, 25 stigum á eftir Liverpool sem á titilinn næsta vísan. Real Madrid bíður svo í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en fyrri leikur liðanna fer fram á Santiago Bernabéu í Madríd þann 26. febrúar.