Tvö kórónuveirusmit til viðbótar hafa verið staðfest meðal gesta á Costa Adeje Palace-hótelinu á Tenerife. Áður höfðu ítölsk hjón sem dvöldu á hótelinu greinst með veiruna og hótelið í kjölfarið sett í sóttkví. Sjö Íslendingar eru á meðal þeirra þúsund gesta sem eru í sóttkvínni.
Spænska dagblaðið El Pais greinir frá nýju smitunum tveimur í dag. Þau smituðu eru sögð Ítalir sem voru á ferðalagi með ítalska lækninum og konu hans sem fyrst voru greind með veiruna. Í frétt El Pais segir að allt fólkið sé nú í einangrun á spítala.
Læknirinn er sagður vera frá Langbarðalandi, héraði á Norður-Ítalíu þar sem veiran hefur náð talsverðri útbreiðslu á stuttum tíma. Hann gaf sig fram á spítala eftir að hann fór að finna fyrir einkennum veirunnar og hafði verið um viku á Tenerife. Í gær var svo staðfest að kona hans væri einnig með veiruna.
Íslendingarnir sem eru í sóttkví á Costa Adeje Palace-hótelinu eru þar í fríi á vegum ferðaskrifstofunnar Vida. Um 800 gestir og 200 starfsmenn hótelsins eru nú í a.m.k. tveggja vikna sóttkví á hótelinu. Íslendingar á Tenerife hafa lýst miklum viðbúnaði við hótelið en lögregla hefur staðið vörð um það og meinað öllum inn- og útgöngu.
Alls hafa níu tilfelli kórónuveiru greinst á Spáni. Seint í gærkvöldi greindist fyrsta tilfelli veirunnar í höfuðborginni Madríd. Öll ný smit kórónuveirunnar í Evrópu undanfarna daga er hægt að rekja til Ítalíu. Í gær var greint frá því að kórónuveiran væri komin til Austurríkis, Króatíu og Sviss.