Lögreglumaður dæmdur fyrir líkamsárás í starfi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. febrúar 2020 13:29 Handtakan sem deilt er um átti sér stað aðfaranótt mánudagsins 18. mars 2019 á Irishman Pub, þar sem Café Rosenberg var áður. Vísir/Vilhelm
Þrítugur lögreglumaður var dæmdur í 45 daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi aðfaranótt mánudagsins 18. mars í fyrra. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Brotaþola voru engar bætur dæmdar í málinu en lögmaður brotaþola segir þeirra þurfa að krefjast á öðrum vettvangi. Í ákæru kom fram að lögreglumaðurinn hefði slegið gestinn aftan í höfuðið þegar hann setti hann inn í lögreglubíl, slegið hann tvö högg í andlit, þrýst hné sínu á háls og höfuð hans. Í framhaldinu hafi hann þrýst hné sínu á háls og höfuð mannsins, þvingað handjárnaða handleggi ítrekað í sársaukastöðu fyrir aftan bak þar sem hann lá á gólfi lögreglubifreiðarinnar. Hlaut hann tognun og ofreynslu á hálshrygg. Þriggja ára reynsla í starfi Lögreglumaðurinn útskrifaðist sem lögreglumaður árið 2016 og hefur starfað sem slíkur síðan. Hann lýsti atburðarásinni umrætt kvöld við aðalmeðferð í málinu þann 30. janúar. Hann og lögreglumaður sem var með honum á vakt voru kallaðir út að barnum Irishman Pub í miðbæ Reykjavíkur vegna annars máls. Þar tóku þeir dyravörð staðarins tali og brotaþoli kom þá aðvífandi. Lögreglumaðurinn sagði brotaþola hafa ætlað að strunsa út með drykk í glerglasi en dyravörðurinn gert athugasemd við það. Í kjölfarið hafi brotaþoli byrjað með „skítkast“, verið mjög ókurteis og „agressívur“, og lögreglumaðurinn því blandað sér í málið. Hann hafi reynt ítrekað að vísa brotaþola frá en „skítkastið“ haldið áfram. Að endingu hafi brotaþoli veist að honum og því verið snúinn niður. Brotaþoli var svo færður inn í lögreglubíl en lögreglumaðurinn sagði hann þá hafa horft á sig á ögrandi máta og ekki virst ætla að fylgja fyrirmælum. Þar kvaðst lögreglumaðurinn hafa lagt lófa á hnakka brotaþola, vissulega ekki blíðlega, en neitaði að hafa slegið hann í hnakkann líkt og honum er gefið að sök í ákæru. Tók glasið og sneri gestinn niður Þá lýsti lögreglumaðurinn því að honum fyndist brotaþoli hafa verið með „mikið leikrit“ í lögreglubílnum þegar hann var færður á lögreglustöð. Hann hafi þess vegna ekki tekið því alvarlega þegar brotaþoli rak upp sársaukavein í bílnum, hann hafi fylgst vel með honum og brotaþoli hafi aldrei verið í andnauð. Einnig hafi brotaþoli alltaf átt auðvelt með mál og bílferðin hafi auk þess ekki verið löng. Upptökur úr öryggismyndavélum frá barnum umrætt kvöld, sem og úr lögreglubílnum, voru sýndar við aðalmeðferðina. Upptökurnar frá staðnum sýndu lögreglumennina ræða við dyravörðinn og brotaþoli sést þar koma aðvífandi með glas, líkt og lögreglumaðurinn lýsti. Til nokkuð langra orðaskipta kemur milli lögreglumannsins og brotaþola, sem lyktar með því að sá fyrrnefndi tekur skyndilega af honum glasið. Að endingu snýr hann brotaþola niður, eftir nokkurt uppþot. Vilhjálmur Þ.Á. Vilhjálmsson (til vinstri) er réttargæslumaður brotaþola. Friðrik Smári Björgvinsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara (til hægri) og fyrrverandi yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, sótti málið.Vísir/Vilhelm Í upptöku úr lögreglubílnum heyrist bæði og sést þegar brotaþoli er færður inn í bílinn og lagður þar á magann. Þegar lagt er af stað heyrist lögreglumaðurinn segja brotaþola ítrekað að „halda kjafti“ og segir honum að menn „hóti ekki lögreglumönnum“ . Brotaþoli segist jafnframt oft „vera alveg að deyja“ og lögreglumaðurinn spyr þá hvað manninum gangi til. Þá spyr hann brotaþola ítrekað til nafns og virðist um leið, í nokkur skipti, rykkja handjárnuðum höndum hans upp. Brotaþoli heyrist þá reka upp áðurnefnt vein. Sló manninn í hausinn Ákærði var spurður um efni myndbandsins fyrir dómi. Fyrst var hann inntur eftir því hvort það væri viðurkennd handtökuaðferð að slá brotaþola í höfuðið líkt og hann virðist gera þegar hann færir hann inn í lögreglubílinn. Lögreglumaðurinn kvaðst telja að svo væri, hann hefði þó vissulega gert það hratt en ekki blíðlega. Hann hefði metið það svo að beita þyrfti meiri hörku en ella þar sem brotaþoli hefði streist á móti og m.a. hótað sér lífláti. Á myndbandinu sést einnig þegar lögreglumaðurinn virðist slá brotaþola í tvígang í andlitið þegar hann liggur í lögreglubílnum. Þetta sagði lögreglumaðurinn ekki kennt sérstaklega í lögregluskólanum og viðurkenndi að þetta liti illa út á myndbandinu. Hann teldi atvikið þó alls ekki teljast til líkamsárásar og hann hefði ekki verið að reyna að meiða brotaþola, en vissulega væri þetta „alls ekki smart“. Ákæruvaldið hélt því fram að lögreglumaðurinn hefði þarna slegið brotaþola í andlitið með krepptum hnefa en lögreglumaðurinn sagðist hafa slegið hann með handarbakinu, nánar tiltekið fingurgómunum, og sýndi dómara handbragðið. „Vægt til orða tekið“ Lögreglumaðurinn neitaði enn fremur að hann hefði þrýst hné sínu á háls brotaþola. Hann hefði þó vissulega sett þrýsting á fótinn. Þá var lögreglumaðurinn aftur sammála því að það liti illa út í myndbandinu þegar hann ýtir handjárnuðum höndum brotaþola upp á meðan hann spyr hann ítrekað til nafns. „Ég held að það sé vægt til orða tekið,“ skaut Friðrik Smári Björgvinsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, þá inn í. Friðrik Smári er öllum hnútum kunnugur innan lögreglunnar þar sem hann var yfirlögregluþjónn um árabil áður en hann færði sig yfir til héraðssaksóknara. Lögreglumaðurinn sagðist með þessu hafa verið að reyna að snúa brotaþola við og kvaðst, eins og áður sagði, á þeirri skoðun að brotaþoli hefði verið að ýkja viðbrögð sín inni í bílnum. Garðar Steinn Ólafsson, verjandi lögreglumannsins, bjó að reynslu sinni úr Löke-málinu svokallaða þar sem hann var verjandi lögreglumannsins í málinu.Vísir/Vilhelm Inntur eftir því hvort þörf hefði verið þeirri valdbeitingu sem sést í myndbandinu, í ljósi þess að um var að ræða ölvaðan mann á sjötugsaldrei í liggjandi stöðu, ítrekaði lögreglumaðurinn að hann skildi athugasemdirnar, einkum þegar kæmi að því að slá manninn í andlitið og rykkja handleggjum hans upp í bílnum. Hann teldi sig hins vegar ekki hafa beitt óviðurkenndum aðferðum og brotaþoli hefði auk þess veist að honum fyrr um kvöldið. Lögreglukona, sem var í för með lögreglumanninum, bar einnig vitni. Sagðist hún telja félaga sinn hafa beitt viðurkenndum aðferðum. Vel hífaður Brotaþoli bar einnig vitni fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Hann sagðist ekki muna atvik vel í aðdraganda handtökunnar. Hann hefði verið undir áhrifum áfengis, „vel hífaður“. Þegar í lögreglubílinn var komið mundi brotaþoli eftir því að þá hafi honum fundist hann vera alveg að kafna. Þá hefði verið þjarmað að honum inni í klefa þegar á lögreglustöðina var komið og hann hefði vaknað morguninn eftir á nærbuxunum. Brotaþoli kvaðst enn glíma við áverka af völdum handtökunnar og var tíðrætt um sviða sem hann fyndi enn fyrir vinstra megin í höfðinu eftir að lögreglumaðurinn þrýsti honum niður í gólf lögreglubílsins. Nú væri hann alltaf orðinn „dauðþreyttur“ klukkan 4-5 á daginn, maður sem vanur væri að vinna sextán klukkutíma á dag. Þá kvaðst hann muna eftir því að lögreglumaðurinn hefði legið ofan á honum með hnéð ofan á hálsi hans og upp eftir höfði. Hann hefði náð illa andanum og mundi eftir „hvínandi sársauka“. Þá kvaðst hann muna eftir því að hafa tjáð lögreglumanninum að hann væri alveg að deyja og sagðist með því hafa viljað láta lögreglumanninn vita að hann væri að „gera út af við sig“. Drekkur ekki mikið en þó daglega Morguninn eftir sagðist brotaþoli hafa vaknað með mikla verki. Þá liggur fyrir að hann fór til læknis um mánuði eftir atvikið og neitaði að hafa lent í átökum eða slysi þar á milli. Garðar Steinn Ólafsson, verjandi lögreglumannsins, spurði brotaþola hvort hann drykki mikið en eins og áður hefur komið fram var sá síðarnefndi ölvaður umrætt kvöld og kvaðst jafnframt ekki muna eftir aðdraganda handtökunnar. Brotaþoli sagðist ekki drekka mikið. Vísaði verjandi þá í læknisvottorð þar sem fram kom að brotaþoli drekki daglega. „Ég fæ mér rauðvín með matnum,“ sagði brotaþoli þá. Hann þvertók jafnframt fyrir það að hafa hótað lögreglumanninum.
Dómsmál Lögreglan Reykjavík Tengdar fréttir Lögreglumaðurinn ekki við störf um þessar mundir Tæplega þrítugur lögreglumaður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi er ekki við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem stendur. 22. nóvember 2019 16:57 Ákærði lögreglumaðurinn segir gestinn fyrst hafa boðið upp á skítkast og svo mikið leikrit Þrítugur lögreglumaður sem sætir ákæru fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi segist hvorki hafa farið offari né beitt ólögmætum aðferðum við handtöku karlmanns á sjötugsaldri fyrir utan Irishman Pub aðfaranótt mánudagsins 18. mars í fyrra. Honum finnist karlmaðurinn hafa sett upp leikþátt við handtökuna. 30. janúar 2020 13:00 Lögreglumaður ákærður fyrir líkamsárás eftir að hafa farið offari við handtöku Lögreglumaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í starfi eftir að hafa farið offari við handtöku á síðasta ári. Lögmaður brotaþola hefur áhyggjur af því að vinnubrögð við handtökuna þyki eðlileg innan lögreglunnar. 21. janúar 2020 18:45 Lögreglumaður ákærður fyrir líkamsárás í starfi Tæplega þrítugur lögreglumaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Er lögreglumaðurinn sakaður um að hafa ekki gætt lögmætra aðferða við handtöku karlmanns. 22. nóvember 2019 09:30 Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Sjá meira
Lögreglumaðurinn ekki við störf um þessar mundir Tæplega þrítugur lögreglumaður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi er ekki við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem stendur. 22. nóvember 2019 16:57
Ákærði lögreglumaðurinn segir gestinn fyrst hafa boðið upp á skítkast og svo mikið leikrit Þrítugur lögreglumaður sem sætir ákæru fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi segist hvorki hafa farið offari né beitt ólögmætum aðferðum við handtöku karlmanns á sjötugsaldri fyrir utan Irishman Pub aðfaranótt mánudagsins 18. mars í fyrra. Honum finnist karlmaðurinn hafa sett upp leikþátt við handtökuna. 30. janúar 2020 13:00
Lögreglumaður ákærður fyrir líkamsárás eftir að hafa farið offari við handtöku Lögreglumaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í starfi eftir að hafa farið offari við handtöku á síðasta ári. Lögmaður brotaþola hefur áhyggjur af því að vinnubrögð við handtökuna þyki eðlileg innan lögreglunnar. 21. janúar 2020 18:45
Lögreglumaður ákærður fyrir líkamsárás í starfi Tæplega þrítugur lögreglumaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Er lögreglumaðurinn sakaður um að hafa ekki gætt lögmætra aðferða við handtöku karlmanns. 22. nóvember 2019 09:30