Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. ágúst 2020 21:30 Caroline Graham Hansen stefnir á hefndir gegn Lyon ef það fer svo að liðin mætist í úrslitum Meistaradeildar Evrópu þann 30. ágúst. Pedro Salado/Getty Images Á morgun hefjast 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Hin norska Caroline Graham Hansen vonast til að lið sitt – Barcelona – geti komið í veg fyrir að franska stórliðið Lyon vinni sinn fimmta Meistaradeildar titil í röð. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali breska miðilsins The Telegraph. The #UWCL quarter-final schedule was confirmed today - and we now have kick-off times The full list https://t.co/GtD8s1nFtk pic.twitter.com/M2QzaFWW2N— #UWCL (@UWCL) June 26, 2020 Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Meistaradeild Evrópu á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur þann 30. ágúst og fer úrslitaleikurinn fram í San Sebastián. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir gekk í raðir Lyon fyrr í sumar. Hún og Caroline Hansen léku saman hjá þýska liðinu Wolfsburg frá árinu 2016 til 2019. „Ef þið, sem lið, viljið vinna titilinn er ljóst að þið verðið að vinna Lyon því ef þið mætið þeim ekki á leiðinni í úrslitaleikinn þá mætið þið þeim þar. Þær eru stærsta hindrunin á leiðinni að titlinum því þær hafa verið besta lið heims undanfarin fimm ár,“ segir Hansen til að mynda í viðtalinu. Caroline Hansen getur hins vegar ekki stöðvað Lyon fyrr en í úrslitaleiknum en það er ljóst að liðin geta ekki mæst í undanúrslitum. Hansen er 25 ára í dag og eðlilega einn af betri leikmönnum Noregs, annars væri hún ekki í stjörnuprýddu liði Barcelona sem vann spænsku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð. Meðal leikmanna liðsins má nefna Jennifer Hermoso, Lieke Mertens og Asisat Lamina Oshoala. Það hefur hjálpað henni að þegar hún var 15 ára skrifaði hún undir samning hjá Stabæk og spilaði með kvennaliði félagsins en æfði samt sem áður með strákunum. „Kvenkyns Messi er að koma æfa með okkur,“ segir Endre Lubeck, fyrrum leikmaður Stabæk og núverandi íþróttablaðamaður í Noregi, að strákarnir hafi hvíslað sín á milli. „Hún getur gert eitthvað sem ekkert okkar býst við, sem engum á vellinum dettur í hug. Við vorum með eitt besta yngri flokka lið í Noregi á þessum tíma og við tókum henni eins og einni af okkur, sem er það sem hún vildi,“ sagði Lubeck einnig. For those of you who want to see the video mentioned in the first few paragraphs of this - of Graham Hansen taking the ball from the bottom floor of an office to the top - see below. One of my new favourite football things as of this week. Video by @NRKUholdning pic.twitter.com/usZCqotllq— Katie Whyatt (@KatieWhyatt) August 19, 2020 Það er ljóst að komist Börsungar alla leið í úrslit – og mæti Lyon – annað árið í röð þá gæti Caroline Graham Hansen loks náð fram hefndum gegn franska félaginu. Ástæðan er sú að Ada Stolsmo Hegerberg sleit krossbönd í hné í janúar á þessu ári og hefur ekkert leikið síðan. Ada skoraði þrennu er Lyon lagði Börsunga af velli á síðustu leiktíð, lokatölur 4-1. Árið áður skoraði hún eitt mark er Börsungar unnu Wolfsburg 4-1 í framlengdum leik. Sara Björk var í byrjunarliði Wolfsburg í þeim leik. Fótbolti Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Heldur einokun Lyon áfram? Franska knattspyrnufélagið Lyon hefur unnið Meistaradeild Evrópu undanfarin fjögur ár. Átta liða úrslit keppninnar hefjast í vikunni. 18. ágúst 2020 07:00 Meistaradeildarævintýri Söru með Lyon í beinni á Stöð 2 Sport Úrslit Meistaradeildar kvenna eru að fara í gang á föstudaginn og leikirnir verða sýndir í íslensku sjónvarpi. 18. ágúst 2020 15:30 Mest lesið Leik lokið: Sviss - Ísland 2-0 | Stelpurnar úr leik eftir svekkjandi tap Fótbolti Sveindís hrósaði stjörnu Sviss: „Trylltist allt þegar hún kom inn á“ Fótbolti Svisslendingarnir stálu handklæði Sveindísar Fótbolti „Mamma kann að tækla þó hún sé á TikTok“ Fótbolti Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti Íslenski boltinn Segir Glódísi algjöra hetju: „Sá bara hversu illa henni leið“ Fótbolti Uppselt á leik Íslands á EM í kvöld Fótbolti Stórgóð stemning hjá stuðningsmönnum Íslands í Sviss Fótbolti Ísland úr leik með tapi í kvöld Fótbolti Hroðaleg meiðsli Musiala setja dökkan blett á HM Fótbolti Fleiri fréttir Svisslendingarnir stálu handklæði Sveindísar Aldrei fleiri mætt í stuðningsmannagöngu fyrir leik „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti Byrjunarliðið gegn Sviss: Fyrirliðinn með eftir veikindin Í beinni: Sviss - Ísland | Stelpurnar með bakið upp við vegg Ísland úr leik með tapi í kvöld Stórgóð stemning hjá stuðningsmönnum Íslands í Sviss „Mamma kann að tækla þó hún sé á TikTok“ Léku eftir innköst Sveindísar á æfingum Ísland mætir óslípuðum demanti í kvöld EM í dag: Allt eða ekkert Ekki í „ljótustu“ treyjunum í kvöld Úr Boganum í stórleik á EM: „Það verða mikil læti“ Gaf lítið upp en er bjartsýn á sigur gegn Íslandi Uppselt á leik Íslands á EM í kvöld Sveindís hrósaði stjörnu Sviss: „Trylltist allt þegar hún kom inn á“ Grindvíkingar lána Sölva Snæ til Austurríkis Segir Glódísi algjöra hetju: „Sá bara hversu illa henni leið“ Kláruðu óuppgert Evrópueinvígi 65 árum síðar Real Madrid afgreiddi Dortmund að mestu í fyrri hálfleik „Hann elskar íslenska stuðningsmenn“ Hroðaleg meiðsli Musiala setja dökkan blett á HM Þungt högg fyrir Hildi: Styðjum hana og hún verður klár í leik þrjú „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Yfirlýsing frá Frökkum í fyrsta leik Evrópumeistararnir kláruðu Bayern tveimur mönnum færri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum „Ég er bara þokkalega sáttur með okkar leik í dag“ Diego Leon orðinn leikmaður Manchester United Sjá meira
Á morgun hefjast 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Hin norska Caroline Graham Hansen vonast til að lið sitt – Barcelona – geti komið í veg fyrir að franska stórliðið Lyon vinni sinn fimmta Meistaradeildar titil í röð. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali breska miðilsins The Telegraph. The #UWCL quarter-final schedule was confirmed today - and we now have kick-off times The full list https://t.co/GtD8s1nFtk pic.twitter.com/M2QzaFWW2N— #UWCL (@UWCL) June 26, 2020 Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Meistaradeild Evrópu á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur þann 30. ágúst og fer úrslitaleikurinn fram í San Sebastián. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir gekk í raðir Lyon fyrr í sumar. Hún og Caroline Hansen léku saman hjá þýska liðinu Wolfsburg frá árinu 2016 til 2019. „Ef þið, sem lið, viljið vinna titilinn er ljóst að þið verðið að vinna Lyon því ef þið mætið þeim ekki á leiðinni í úrslitaleikinn þá mætið þið þeim þar. Þær eru stærsta hindrunin á leiðinni að titlinum því þær hafa verið besta lið heims undanfarin fimm ár,“ segir Hansen til að mynda í viðtalinu. Caroline Hansen getur hins vegar ekki stöðvað Lyon fyrr en í úrslitaleiknum en það er ljóst að liðin geta ekki mæst í undanúrslitum. Hansen er 25 ára í dag og eðlilega einn af betri leikmönnum Noregs, annars væri hún ekki í stjörnuprýddu liði Barcelona sem vann spænsku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð. Meðal leikmanna liðsins má nefna Jennifer Hermoso, Lieke Mertens og Asisat Lamina Oshoala. Það hefur hjálpað henni að þegar hún var 15 ára skrifaði hún undir samning hjá Stabæk og spilaði með kvennaliði félagsins en æfði samt sem áður með strákunum. „Kvenkyns Messi er að koma æfa með okkur,“ segir Endre Lubeck, fyrrum leikmaður Stabæk og núverandi íþróttablaðamaður í Noregi, að strákarnir hafi hvíslað sín á milli. „Hún getur gert eitthvað sem ekkert okkar býst við, sem engum á vellinum dettur í hug. Við vorum með eitt besta yngri flokka lið í Noregi á þessum tíma og við tókum henni eins og einni af okkur, sem er það sem hún vildi,“ sagði Lubeck einnig. For those of you who want to see the video mentioned in the first few paragraphs of this - of Graham Hansen taking the ball from the bottom floor of an office to the top - see below. One of my new favourite football things as of this week. Video by @NRKUholdning pic.twitter.com/usZCqotllq— Katie Whyatt (@KatieWhyatt) August 19, 2020 Það er ljóst að komist Börsungar alla leið í úrslit – og mæti Lyon – annað árið í röð þá gæti Caroline Graham Hansen loks náð fram hefndum gegn franska félaginu. Ástæðan er sú að Ada Stolsmo Hegerberg sleit krossbönd í hné í janúar á þessu ári og hefur ekkert leikið síðan. Ada skoraði þrennu er Lyon lagði Börsunga af velli á síðustu leiktíð, lokatölur 4-1. Árið áður skoraði hún eitt mark er Börsungar unnu Wolfsburg 4-1 í framlengdum leik. Sara Björk var í byrjunarliði Wolfsburg í þeim leik.
Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Meistaradeild Evrópu á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur þann 30. ágúst og fer úrslitaleikurinn fram í San Sebastián. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Fótbolti Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Heldur einokun Lyon áfram? Franska knattspyrnufélagið Lyon hefur unnið Meistaradeild Evrópu undanfarin fjögur ár. Átta liða úrslit keppninnar hefjast í vikunni. 18. ágúst 2020 07:00 Meistaradeildarævintýri Söru með Lyon í beinni á Stöð 2 Sport Úrslit Meistaradeildar kvenna eru að fara í gang á föstudaginn og leikirnir verða sýndir í íslensku sjónvarpi. 18. ágúst 2020 15:30 Mest lesið Leik lokið: Sviss - Ísland 2-0 | Stelpurnar úr leik eftir svekkjandi tap Fótbolti Sveindís hrósaði stjörnu Sviss: „Trylltist allt þegar hún kom inn á“ Fótbolti Svisslendingarnir stálu handklæði Sveindísar Fótbolti „Mamma kann að tækla þó hún sé á TikTok“ Fótbolti Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti Íslenski boltinn Segir Glódísi algjöra hetju: „Sá bara hversu illa henni leið“ Fótbolti Uppselt á leik Íslands á EM í kvöld Fótbolti Stórgóð stemning hjá stuðningsmönnum Íslands í Sviss Fótbolti Ísland úr leik með tapi í kvöld Fótbolti Hroðaleg meiðsli Musiala setja dökkan blett á HM Fótbolti Fleiri fréttir Svisslendingarnir stálu handklæði Sveindísar Aldrei fleiri mætt í stuðningsmannagöngu fyrir leik „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti Byrjunarliðið gegn Sviss: Fyrirliðinn með eftir veikindin Í beinni: Sviss - Ísland | Stelpurnar með bakið upp við vegg Ísland úr leik með tapi í kvöld Stórgóð stemning hjá stuðningsmönnum Íslands í Sviss „Mamma kann að tækla þó hún sé á TikTok“ Léku eftir innköst Sveindísar á æfingum Ísland mætir óslípuðum demanti í kvöld EM í dag: Allt eða ekkert Ekki í „ljótustu“ treyjunum í kvöld Úr Boganum í stórleik á EM: „Það verða mikil læti“ Gaf lítið upp en er bjartsýn á sigur gegn Íslandi Uppselt á leik Íslands á EM í kvöld Sveindís hrósaði stjörnu Sviss: „Trylltist allt þegar hún kom inn á“ Grindvíkingar lána Sölva Snæ til Austurríkis Segir Glódísi algjöra hetju: „Sá bara hversu illa henni leið“ Kláruðu óuppgert Evrópueinvígi 65 árum síðar Real Madrid afgreiddi Dortmund að mestu í fyrri hálfleik „Hann elskar íslenska stuðningsmenn“ Hroðaleg meiðsli Musiala setja dökkan blett á HM Þungt högg fyrir Hildi: Styðjum hana og hún verður klár í leik þrjú „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Yfirlýsing frá Frökkum í fyrsta leik Evrópumeistararnir kláruðu Bayern tveimur mönnum færri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum „Ég er bara þokkalega sáttur með okkar leik í dag“ Diego Leon orðinn leikmaður Manchester United Sjá meira
Heldur einokun Lyon áfram? Franska knattspyrnufélagið Lyon hefur unnið Meistaradeild Evrópu undanfarin fjögur ár. Átta liða úrslit keppninnar hefjast í vikunni. 18. ágúst 2020 07:00
Meistaradeildarævintýri Söru með Lyon í beinni á Stöð 2 Sport Úrslit Meistaradeildar kvenna eru að fara í gang á föstudaginn og leikirnir verða sýndir í íslensku sjónvarpi. 18. ágúst 2020 15:30