Árangur íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn andstæðingum liðsins í Þjóðadeildinni næsta haust er vægast sagt misgóður.
Ísland fékk England úr efsta styrkleikaflokki en liðin hafa aðeins einu sinni mæst í mótsleik. Það var auðvitað í 16-liða úrslitum á EM 2016 þegar Ísland vann 2-1 sigur með mörkum Ragnars Sigurðssonar og Kolbeins Sigþórssonar. Það var síðasti leikur Englands undir stjórn Roy Hodgson en Gareth Southgate tók við liðinu þá um haustið. Undir hans stjórn varð England í 4. sæti á HM 2018 og liðið endaði í 3. sæti Þjóðadeildarinnar í fyrrasumar.
Ísland gerði jafntefli við England í vináttulandsleik árið 1982, 1-1, en tapaði 6-1 á æfingamóti sumarið 2004.
Ísland hefur aldrei unnið Danmörku, hvorki í mótsleik né vináttulandsleik, í 23 tilraunum. Liðin mættust síðast í vináttulandsleik í aðdraganda EM 2016 og unnu Danir 2-1 sigur. Liðin mættust í undankeppni EM 2012, undankeppni EM 2008 og undankeppni HM 2002, og vann Danmörk alla sex leikina.
Danir komust í 16-liða úrslit á HM 2018 en féllu úr leik í vítaspyrnukeppni gegn silfurliði Króatíu. Þeir unnu sinni riðil í B-deild Þjóðadeildarinnar haustið 2018, í baráttu við Austurríki og Norður-Írland, og leika þess vegna í A-deild núna.

Það er skammt síðan að Belgía mætti á Laugardalsvöll en liðið var í riðli Íslands í fyrstu útgáfu Þjóðadeildarinnar haustið 2018. Belgía vann 3-0 á Laugardalsvelli og svo 2-0 á heimavelli. Áður mættust liðin í mótsleikjum síðast í undankeppni HM 1978, undankeppni EM 1976, undankeppni HM 1974 og undankeppni HM 1958. Alltaf unnu Belgar, alls átta leiki, og þeir unnu einnig vináttulandsleik þjóðanna á heimavelli í nóvember 2014. Belgía hefur því unnið alla ellefu leiki sína við Ísland.
Belgar unnu til bronsverðlauna á HM 2018 en urðu svo í 2. sæti í riðli Íslands í Þjóðadeildinni, á eftir Sviss.