Búið að ná manninum undan plötunni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. mars 2020 17:35 Frá vettvangi í Mosfellsbæ í dag. vísir/vilhelm
Búið er að ná hinum manninum sem lenti undir steyptri gólfplötu á byggingarsvæði við Sunnukrika í Mosfellsbæ í dag undan plötunni. Hann hefur verið fluttur á spítala en annar maður sem lenti einnig í slysinu náðist fyrr í dag undan plötunni og var fluttur á spítala. Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að um erlenda starfsmenn sé að ræða. Ekki sé hægt að veita upplýsingar um líðan þeirra en slysið var mjög alvarlegt og viðbragðið mikið. Hann segir vinnu á vettvangi nú rétt að ljúka og að engin vinna sé á svæðinu eða verði á svæðinu á næstunni enda sé vettvangurinn hættulegur. Rannsókn málsins er á byrjunarreit en auk lögreglu skoðar Vinnueftirlitið hvað gerðist. Mennirnir tveir voru við vinnu þegar steypt gólfplata féll á milli hæða á byggingarsvæðinu. Tilkynning um slysið barst klukkan 14:30 og fór fjölmennt lið viðbragðsaðila þegar á vettvang. Eftir því sem fréttastofa kemst næst á byggingin þar sem slysið varð að hýsa heilsugæsluna í Mosfellsbæ.
Mosfellsbær Tengdar fréttir Alvarlegt slys á byggingasvæði við Sunnukrika Alvarlegt slys varð við Sunnukrika í Mosfellsbæ nú á þriðja tímanum í dag. Að sögn Valgarðs Valgarðssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, féll gólfplata í byggingu við götuna. 3. mars 2020 14:56 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira
Alvarlegt slys á byggingasvæði við Sunnukrika Alvarlegt slys varð við Sunnukrika í Mosfellsbæ nú á þriðja tímanum í dag. Að sögn Valgarðs Valgarðssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, féll gólfplata í byggingu við götuna. 3. mars 2020 14:56