Toppliðin missa lykilmenn í sóttkví en spila Sindri Sverrisson skrifar 21. ágúst 2020 13:33 Valur og Breiðablik eru efst í Pepsi Max-deildinni. Þess má geta að leikmennirnir á myndinni eru ekki í sóttkví svo vitað sé. VÍSIR/DANÍEL
Valur og Breiðablik, efstu lið Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta, verða án leikmanns eða leikmanna á næstunni þar sem þeir eru komnir í sóttkví. Um er að ræða lykilleikmann í Breiðabliki og tvo leikmenn Vals sem spilað hafa alla níu leiki liðsins í deildinni í sumar. Málið tengist smiti sem kom upp í starfsliði kvennaliðs KR. Þrátt fyrir að liðin missi þessa leikmenn er ekki grundvöllur fyrir því að leikjum þeirra verði frestað. Til þess þyrftu að lágmarki fimm leikmenn að vera úr leik vegna sóttkvíar eða einangrunar, samkvæmt sérstakri reglugerð KSÍ vegna kórónuveirufaraldursins. Breiðablik er efst í Pepsi Max-deildinni, fimm stigum á undan Val, og á stórleik við Selfoss á mánudagskvöld. Leik liðsins við KR 29. ágúst var hins vegar frestað þar sem KR-liðið er komið í sóttkví. Breiðablik mætir svo Þrótti R. 6. september og gæti þá teflt fram fyrrnefndum leikmanni. Valur mætir Þrótti á mánudaginn og sækir svo Þór/KA heim næsta föstudag. Liðið spilar svo ekki aftur fyrr en 6. september gegn ÍBV og ætti þá að vera með fullskipað lið.
Pepsi Max-deild kvenna Valur Breiðablik Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir KR í sóttkví í þriðja sinn í sumar vegna smits KR-konur í fótbolta eru komnar í sóttkví eftir að smit greindist hjá liðinu. Er þetta í þriðja sinn sem að leikmenn úr liðinu þurfa að fara í sóttkví í sumar. 20. ágúst 2020 12:05 Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport Fleiri fréttir FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Sjá meira
KR í sóttkví í þriðja sinn í sumar vegna smits KR-konur í fótbolta eru komnar í sóttkví eftir að smit greindist hjá liðinu. Er þetta í þriðja sinn sem að leikmenn úr liðinu þurfa að fara í sóttkví í sumar. 20. ágúst 2020 12:05